Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Landlæknir veitir staðfestingu á því að rekstur heilbrigðisþjónustu uppfylli faglegar lágmarkskröfur og önnur skilyrði samkvæmt lögum. Mikilvægt er að tilkynningar og umsóknir séu vandaðar og að þeim fylgi öll nauðsynleg gögn, þar sem slík gögn eru forsenda þess að embættið geti metið hvort skilyrði fyrir staðfestingu séu uppfyllt.
Staðfesting þess efnis að rekstraraðili uppfylli faglegar lágmarkskröfur er ekki veitt fyrr en öll tilskilin gögn hafa borist og embætti landlæknis hefur engar frekari athugasemdir eða kröfur.
Samkvæmt 6. gr. laga um landlækni og lýðheilsu ber að tilkynna fyrirhugaðan rekstur heilbrigðisþjónustu til embættis landlæknis. Embættið metur þá hvort reksturinn uppfylli faglegar kröfur og önnur skilyrði samkvæmt gildandi lögum og reglum um heilbrigðisþjónustu.
Samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu nr. 47/2024 hefur ábyrgð á sjúklingatryggingu heilbrigðisstarfsfólks sem vinnur sjálfstætt færst frá einkareknum tryggingafélögum til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ).
Helstu skilyrði:
Til að fá nákvæmar upplýsingar um iðgjaldaupphæðir og frekari leiðbeiningar er mælt með því að heilbrigðissstarfsfólk sem vinnur sjálfstætt hafi samband við Sjúkratryggingar Íslands eða sitt aðildarfélag innan BHM.
Reglugerð nr. 1690/2024 um iðgjald vegna sjúklingatryggingar.
Lög nr. 47/2024 um sjúklingatryggingu
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 10. júní 2025.