Lífeyrissjóður
Samkvæmt lögum eru allir starfandi einstaklingar á vinnumarkaði, þar með talið sjálfstætt starfandi, skyldugir til að greiða í lífeyrissjóð.
Samkvæmt lögum eru allir starfandi einstaklingar á vinnumarkaði, þar með talið sjálfstætt starfandi, skyldugir til að greiða í lífeyrissjóð.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Reglur um lífeyrisiðgjöld og réttindi eru skilgreind í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og samþykkjum hlutaðeigandi lífeyrissjóða.
Sjálfstæðum atvinnurekendum ber að greiða að lágmarki 15,5% af reiknuðu endurgjaldi í lífeyrissjóð. Heimilt er að greiða 3,5% af því í tilgreinda séreign.
Sjálfstætt starfandi geta jafnframt greitt umfram þessa lágmarksskyldu ef þeir kjósa svo.
Iðgjöldin á að greiða mánaðarlega. Gjalddagi iðgjalda er 10. dagur næsta mánaðar eftir að laun eru greidd. Eindagi er síðasti dagur greiðslumánaðar. Ef iðgjöld greiðast eftir eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Sjálfstætt starfandi bera sjálfir ábyrgð á að velja sér lífeyrissjóð og greiða iðgjöld sín reglulega til að tryggja réttindi sín, öndvert við almennt launafólk þar sem aðild fer samkvæmt viðkomandi kjarasamningi og/eða sérlögum ef við á.
Við val á lífeyrissjóði er ráðlagt að huga að:
Lífeyrisréttindi sjálfstætt starfandi einstaklinga byggjast á sömu reglum og hjá launafólki:
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðum lífeyrissjóða og á www.lifeyrismal.is.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 27. febrúar 2025.