Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          1. mai 2026
          Fréttir

          Viska hlýt­ur jafn­launastað­fest­ingu

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Viska hefur hlotið jafnlaunastaðfestingu frá Jafnréttisstofu sem staðfestir að félagið uppfyllir kröfur um að launakerfi þess og framkvæmd launaákvarðana mismuni ekki á grundvelli kyns. Staðfestingin er mikilvæg viðurkenning á markvissri vinnu Visku við að tryggja jafnræði, gagnsæi og fagmennsku á skrifstofu sinni.

          Jafnlaunastaðfesting er opinber staðfesting á því að vinnustaður hafi lagt fram og rökstutt, með viðeigandi gögnum, að laun séu ákveðin á málefnalegum forsendum og að laun séu jöfn fyrir jafnverðmæt störf óháð kyni. Með staðfestingunni er Jafnréttisstofa að leggja faglegt mat á launakerfi og verklag við launaákvarðanir og staðfesta að ekki sé um kynbundna mismunun að ræða. Ferlið felur í sér ítarlega yfirferð á launagögnum, verklagi við ákvarðanir um laun og hvernig tryggt er að jafnræðis sé gætt í framkvæmd.

          „Það er bæði mikilvægt og ánægjulegt að fá þessa staðfestingu,“ segir Georg Brynjarsson, framkvæmdastjóri Visku. „Sem stéttarfélag berum við sérstaka ábyrgð á að standa vörð um réttindi á vinnumarkaði og þá er lykilatriði að við sjálf göngum fram með góðu fordæmi.“

          Georg Brynjarsson