Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Starfsfólk á skýr og afmörkuð réttindi samkvæmt reglum um persónuvernd, þar á meðal rétt til upplýsinga, aðgangs, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar vinnslu og andmæla. Þessi réttindi eru grundvöllur þess að einstaklingar geti haft raunverulegt eftirlit með eigin persónuupplýsingum og að friðhelgi þeirra sé virt í hvívetna.
Þessi réttindi geta átt við á öllum stigum vinnusambandsins og við lok þess.
Réttindi starfsfólks haldast í hendur við skyldur vinnuveitanda. Alla vinnslu persónuupplýsinga verður að byggja á skýrum lagaheimildum og fara fram í samræmi við meginreglur persónuverndar, svo sem lögmæti, gagnsæi, meðalhóf og öryggi.
Réttindi launafólks byggja á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (pvl.) og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679 (GDPR).
Starfsfólk á rétt á að fá skýrar upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga sinna. Vinnuveitandi skal m.a. upplýsa um:
Upplýsingaskylda er oft uppfyllt með persónuverndarstefnu vinnuveitanda, upplýsingum í starfsmannahandbók eða sérstakri tilkynningu.
Starfsfólk á rétt á að fá staðfestingu á því hvort vinnuveitandi vinni með persónuupplýsingar þess og, ef svo er, aðgang að þeim upplýsingum. Með aðgangsrétti fylgir réttur til að fá upplýsingar um:
Rétturinn auðveldar starfsfólki að meta hvort vinnslan sé lögmæt og hvort tilefni sé til að nýta önnur réttindi, svo sem leiðréttingu eða eyðingu.
Dæmi um tilvik þar sem aðgangsréttur nýtist:
Vinnuveitanda ber að svara beiðni innan eins mánaðar. Ef frestur er framlengdur skal upplýsa um ástæður tafa.
Starfsfólk á rétt á að fá leiðréttar rangar, óáreiðanlegar eða ófullnægjandi persónuupplýsingar án óhæfilegs dráttar. Þetta getur t.d. átt við um:
Ef upplýsingar eru ófullnægjandi með hliðsjón af tilgangi vinnslu skal vinnuveitandi annaðhvort leiðrétta þær eða eyða þeim.
Starfsfólk getur farið fram á að vinnuveitandi eyði persónuupplýsingum sínum þegar:
Skylda til eyðingar gildir þó ekki ef vinnslan er nauðsynleg, t.d. vegna lagaskyldu, réttarkrafna eða í þágu almannahagsmuna.
Starfsfólk á rétt á að fá persónuupplýsingar sínar afhentar á skipulegu, algengu og tölvulesanlegu sniði og, þegar tæknilega gerlegt er, að gagnaflutningur til annars ábyrgðaraðila fari fram beint.
Rétturinn á einkum við þegar vinnslan byggir á:
og fer fram með rafrænum hætti.
Starfsfólk getur mótmælt vinnslu persónuupplýsinga sinna á grundvelli lögmætra hagsmuna vinnuveitanda. Þá verður vinnuveitandi að sýna fram á lögmæta hagsmuni sem vega þyngra en hagsmunir, réttindi og frelsi einstaklingsins, ella skal vinnslu hætt.
Andmælaréttur er algjör þegar vinnsla fer fram í tengslum við beina markaðssetningu; vinnslu í þeim tilgangi skal þá hætt strax.
Starfsfólk getur farið fram á að vinnsla gagna sé takmörkuð, t.d. ef:
Við takmörkun má vinnuveitandi að jafnaði aðeins varðveita gögnin, ekki vinna frekar með þau.
Starfsfólk á rétt á að sæta ekki ákvörðun sem byggist eingöngu á sjálfvirkri vinnslu, þar með talið gerð persónusniðs, ef ákvörðunin hefur lagaleg áhrif eða samsvarandi mikil áhrif á það.
Dæmi:
Starfsfólk á í slíkum tilvikum rétt á mannlegri rýni og að koma á framfæri sjónarmiðum sínum.
Starfsfólk getur sent skriflega beiðni til vinnuveitanda eða persónuverndarfulltrúa. Vinnuveitanda ber að svara erindi innan eins mánaðar og grípa til viðeigandi ráðstafana.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 30. maí 2026.