Neysluhlé
Neysluhlé, matar- og kaffitímar og aðstaða á vinnustöðum
Neysluhlé, matar- og kaffitímar og aðstaða á vinnustöðum
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM og ríkisins geyma ákvæði um matar- og kaffitíma, aðstöðu til að neyta matar og drykkjar og greiðslu fæðispeninga þegar starfsfólk hefur ekki aðgang að mötuneyti við þær aðstæður sem nánar eru tilgreindar í kjarasamningi. Hér er farið yfir helstu reglur sem gilda um þessi atriði á vinnustöðum ríkisins.
Matar- og kaffitímar á vinnutíma
Neysla matar og drykkjar við vinnu: Starfsfólki er heimilt að neyta matar og drykkjar við vinnu sína þegar því verður við komið vegna starfsins. Slíkur tími telst til virks vinnutíma.
Sérstök dagleg hlé á forræði starfsfólks: Með samkomulagi stjórnenda stofnunar og einfalds meirihluta starfsfólks er heimilt að ákveða sérstök dagleg hlé sem eru á forræði starfsfólks. Slík hlé teljast ekki til virks vinnutíma og lengja því daglega viðveru sem þeim nemur.
Vinna í umsömdum hléum: Sé starfsfólki gert að vinna að beiðni yfirmanns í slíku hléi á stofnun þar sem samkomulag um sérstök dagleg hlé er í gildi skal greiða fyrir þann tíma með yfirvinnukaupi.
Aðstaða á föstum vinnustað: Starfsfólk sem vinnur á föstum vinnustað skal hafa aðgang að matstofu eftir því sem við verður komið.
Kröfur til matstofu: Með matstofu er átt við stað þar sem unnt er að bera fram heitan og kaldan mat, hvort sem hann er aðfluttur eða eldaður á staðnum. Húsakynni og aðstaða skulu fullnægja kröfum heilbrigðisyfirvalda.
Kostnaður: Starfsfólk greiðir efnisverð matar en stofnunin ber annan rekstrarkostnað vegna mötuneytisins.
Þegar mötuneyti er ekki á vinnustað: Sé mötuneyti ekki starfrækt á vinnustað skal eftir því sem unnt er tryggja starfsfólki aðgang að nærliggjandi mötuneyti á vegum vinnuveitanda. Einnig getur komið til þess að matur sé fluttur á vinnustað án kostnaðar fyrir starfsfólk.
Matur keyptur annars staðar: Kaupi stofnun mat annars staðar með þeim hætti sem kjarasamningurinn gerir ráð fyrir greiðir starfsfólk fyrir sambærilegan mat verð sem miðast við meðaltalsverð í mötuneyti Stjórnarráðsins.
Aðkoma starfsfólks að rekstri mötuneytis: Þar sem mötuneyti er starfrækt skal starfsfólk tilnefna tvo trúnaðarmenn úr sínum hópi. Þeir skulu hafa eftirlit með rekstrinum og aðgang að reikningum mötuneytisins.
Starfsfólk getur átt rétt á fæðispeningum ef það hefur ekki aðgang að mötuneyti þótt slíkur aðgangur eigi að vera fyrir hendi samkvæmt kjarasamningi. Sama á við um starfsfólk sem er á vakt þegar mötuneyti er lokað, að öðrum skilyrðum samningsins uppfylltum.
Lágmarksvinnutími: Réttur til fæðispeninga er bundinn því skilyrði að dagleg vinnuskylda sé sex klukkustundir eða lengri.
Fjárhæð: Grunnfjárhæð fæðispeninga samkvæmt kjarasamningi er 638 kr.
Verðbætur: Fjárhæðin tekur breytingum á þriggja mánaða fresti í samræmi við matvörulið vísitölu neysluverðs. Miðað er við grunnvísitölu maí 2024, 236,6 stig. Því getur fjárhæð greiðslunnar á hverjum tíma verið önnur en grunnfjárhæðin sem tilgreind er í kjarasamningnum.
Starfsfólk sem vegna starfs síns þarf að matast með skjólstæðingum og aðstoða þá við borðhald greiðir ekki fyrir þær máltíðir, enda sé ekki tekið tillit til þess með öðrum hætti, svo sem með styttri vinnutíma eða sérstakri greiðslu.
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM og sveitarfélaganna kveða skýrt á um réttindi starfsmanna varðandi hlé frá vinnu, matstöðu, aðstöðu til neyslu matar og drykkjar, svo og rétt til fæðispeninga þegar aðstaða er ekki til fyrirmyndar. Hér er farið yfir helstu reglur sem gilda um þessi mál á vinnustöðum hjá sveitarfélögum.
Matar- og kaffitímar á vinnutíma
Ef starfsmaður hefur ekki aðgang að matstofu þótt hann ætti að hafa það skv. kjarasamningi, eða er á vakt þegar matstofa vinnustaðarins er ekki opin, á hann rétt á að fá það bætt með fæðispeningum.
Starfsmönnum sem er gert að matast með skjólstæðingum sínum og aðstoða þá við borðhaldið, skulu undanþegnir því að greiða fyrir þær máltíðir enda sé þeim ekki umbunað fyrir það með öðrum hætti svo sem styttri vinnutíma eða annarri greiðslu.
Í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM segir í grein 2.1.1 að samkomulag ráði lengd og fyrirkomulagi neysluhléa og eftir atvikum annarra hléa frá vinnu.
Tekið er fram að hádegishlé, umfram greidd neysluhlé, teljist ekki til greidds vinnutíma.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 22. september 2026.