Ríki og sveitarfélög
Orlofsréttur starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum, sem er í fullu starfi frá 1. maí til 30. apríl árið eftir, er 240 klst. eða að jafnaði 30 dagar.
Orlofsréttur starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum, sem er í fullu starfi frá 1. maí til 30. apríl árið eftir, er 240 klst. eða að jafnaði 30 dagar.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Orlof starfsfólks ríkis og sveitarfélaga er 30 dagar miðað við fullt ársstarf, sem svarar til 216 vinnustunda miðað við 36 stunda vinnuviku.
Ávinnsla orlofs er hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmaður fær 13,04% orlofsfjár reiknað á yfirvinnu og álagsgreiðslur samkvæmt samningnum.
Auk þess fær starfsmaður sérstaka orlofsuppbót sem greidd er 1. júní ár hvert og miðast við fullt starf á næstliðnu orlofsári:
Orlofsuppbótin er föst krónutala og tekur ekki öðrum breytingum á samningstímanum. Á hana reiknast ekki orlofsfé. Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. þriggja mánaða samfellt starf á árinu fær hann orlofsuppbót hlutfallslega. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir lok greiðsluskyldu stofnunar, eða í allt að sex mánuði vegna fæðingarorlofs.
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl. Verði breytingar á starfshlutfalli á orlofsárinu þarf að taka tillit til þess við útreikning launa í orlofstöku.
Sumarorlofstímabilið er frá 1. maí til 15. september.
Á þessum tíma á starfsmaður rétt á að fá samfellt 15 daga orlof, verði því við komið vegna starfa stofnunar.
Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsmenn, hvenær orlof er veitt og er skylt að verða við óskum starfsmanna eftir því sem við verður komið. Ákvörðun um sumarorlof skal liggja fyrir 31. mars og tilkynnt starfsmanni með sannanlegum hætti, t.d. í tímaskráningarkerfi stofnunar.
Ef orlof eða hluti þess er tekinn utan sumarorlofstímabils að skriflegri beiðni yfirmanns lengist sá hluti orlofsins um 25%.
Starfsmaður fær 13,04% orlofsfjár reiknað á yfirvinnu og álagsgreiðslur samkvæmt samningnum.
Orlofsféð er lagt inn á bankareikning (orlofsreikning) viðkomandi starfsmanns og greitt út í maí ár hvert.
Dæmi eru um að aðilar semji um að orlof teljist hluti af föstum yfirvinnugreiðslum. Slíkir samningar verða að efni til að byggja á því að fastar yfirvinnustundir séu greiddar alla mánuði ársins, einnig þann tíma sem starfsmaður er í orlofi. Þannig séu staðin full skil á orlofslaunum af föstu yfirvinnustundunum og því ekki greitt orlofsfé af þeim.
Í máli sem rekið var fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur (mál E-5141/2023) var tekist á um hvort vinnuveitanda hefði borið að greiða orlof á fastar yfirvinnugreiðslur starfsmanns. Vinnuveitandinn hélt því fram að orlof væri ekki greitt á fasta yfirvinnu hjá starfsfólki Stjórnarráðsins. Starfsmenn sem væru á fastlaunasamningi fengju greidda yfirvinnu alla mánuði ársins, einnig þegar þeir væru í sumarfríi.
Í ráðningarsamningi starfsmanns var þetta fyrirkomulag ekki tiltekið sérstaklega og ekki var fylgt leiðbeiningum um það efni í dreifibréfi fjármálaráðuneytisins um orlof nr. 2/2006. Var vinnuveitandinn látinn bera hallann af þessu og dæmdur til að greiða orlofslaunakröfu starfsmanns til samræmis við ákvæði kjarasamnings.
Flutningur orlofs milli ára er að jafnaði óheimill. Þó er heimilt að geyma orlof til næsta árs ef starfsmaður tekur ekki orlof að hluta eða öllu leyti vegna skriflegrar beiðni yfirmanns — eða ef starfsmaður er í fæðingarorlofi. Uppsafnað orlof getur þó aldrei orðið meira en 60 dagar og fyrnist ónýtt orlof.
Veikist starfsmaður í orlofi þannig að hann geti ekki notið þess, telst sá tími ekki til orlofs enda sanni hann það með læknisvottorði. Tilkynna skal yfirmanni þegar í stað. Í slíkum tilvikum er heimilt að flytja ótekið orlof til næsta árs.
Komi starfsmaður úr öðru starfi án þess að hafa þar notið áunnins orlofs á hann rétt á launalausu orlofi þar til 30 daga orlofi er náð.
Ríki og sveitarfélög greiða 0,25% af heildarlaunum starfsfólks í Orlofssjóð BHM.
Aðildarfélög BHM veita félagsfólki nánari upplýsingar um orlofsréttindi samkvæmt lögum og kjarasamningum á opinberum vinnumarkaði.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 11. júní 2026.