Orlof við starfslok
Þegar vinnusambandi lýkur átt þú skýran rétt á að fá allt áunnið og ótekið orlof gert upp.
Þegar vinnusambandi lýkur átt þú skýran rétt á að fá allt áunnið og ótekið orlof gert upp.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Við starfslok á að greiða þér öll áunnin orlofslaun. Þetta á við um bæði:
Samkvæmt 8. gr. orlofslaga átt þú rétt á að fá þetta gert upp strax við starfslok. Þú þarft því ekki að bíða uns orlofsárið tekur enda eða þar til næsta almenna orlofstímabil hefst.
Stutta svarið er nei. Atvinnurekandi getur ekki ákveðið einhliða að þú farir í orlof á uppsagnarfresti.
Hvað segja dómstólar?
Í dómi Landsréttar (mál nr. 912/2018) var staðfest að vinnuveitanda er með öllu óheimilt að ráðstafa áunnum orlofsrétti starfsmanns þannig að hann falli innan uppsagnarfrests, nema skýrt samþykki starfsmanns liggi fyrir.
Í málinu hafði starfsmaður sagt upp með sex mánaða fresti. Uppsagnarfresturinn var greiddur en atvinnurekandi reyndi að láta 30 daga af eldra, óteknu orlofi falla inn í þann frest án samráðs. Dómurinn vísaði til 5. gr. orlofslaga, sem kveður á um að orlof skuli ákveðið í samráði, og dæmdi starfsmanninum í vil.
Þarftu frekari aðstoð eða viltu fá yfirferð á þínum réttindum? Ekki hika við að hafa samband við þitt stéttarfélag innan BHM.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 5. júlí 2026.