Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Laun félagsfólks í aðildarfélögum BHM sem starfa hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum byggja annars vegar á miðlægum heildarkjarasamningi við viðsemjendur hvað varðar laun og almenn réttindi. Hins vegar fara laun félagsmanna eftir starfsmati sem raðar starfsmönnum í launaflokka eftir ábyrgð og álagi sem starfinu fylgir.
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM og Reykjavíkurborgar eru aðgengilegir á heimasíðu borgarinnar.
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM og sambandsins eru birtir á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Starfsmatskerfi er notað til að meta með kerfisbundnum hætti þær kröfur sem störf gera til starfsmanna. Kerfið byggir á hlutlægum viðmiðum sem notuð eru til að bera saman störf í samræmi við þær kröfur sem í störfunum felast, óháð hæfni þeirra sem þau vinna.
Markmið starfsmats er að tryggja að starfsmönnum séu ákvörðuð laun með eins málefnalegum og hlutlægum aðferðum og hægt er og á að leiða til þess að störfum sé raðað þannig til grunnlauna að þau séu hin sömu fyrir störf sem metin eru jafnkrefjandi, óháð starfsstöðum, stéttarfélagi eða kyni.
Starfsmat er í stuttu máli:
Starfsmat er ekki:
Verkefnastofa starfsmats sér um starfsmat fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðunni www.starfsmat.is
Aðildarfélög BHM veita félagsfólki upplýsingar um starfskjör samkvæmt kjarasamningi og þau áhrif sem starfsmat hefur á launasetningu þess.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 28. nóvember 2024.