Aksturspeningar og dagpeningar
Ferðakostnaður ríkisstarfsfólks skiptist annars vegar í akstursgjald vegna notkunar eigin bifreiðar í þágu ríkisstofnana og hins vegar í dagpeninga vegna ferða, bæði innanlands og erlendis.
Ferðakostnaður ríkisstarfsfólks skiptist annars vegar í akstursgjald vegna notkunar eigin bifreiðar í þágu ríkisstofnana og hins vegar í dagpeninga vegna ferða, bæði innanlands og erlendis.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Um rétt til greiðslu ferðakostnaðar, dagpeninga og annarra útgjalda vegna ferða á vegum vinnuveitanda, jafnt innanlands sem utan, fer samkvæmt ákvæðum kjarasamninga aðildarfélaga BHM. Um uppgjör ferðakostnaðar, þar á meðal akstursgjald, gilda sömu reglur og um uppgjör yfirvinnu.
Ákvörðun um fjárhæð dagpeninga er tekin af ferðakostnaðarnefnd ríkisins. Í nefndinni sitja einn fulltrúi tilnefndur af BSRB, einn fulltrúi tilnefndur af BHM og tveir fulltrúar tilnefndir af fjármála- og efnahagsráðherra.
Nánari skýringar og reiknivélar eru aðgengilegar á vef stjórnarráðsins.
Akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana innanlands, frá og með 1. júní 2026:
Almennt gjald
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.
Dagpeningar til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands frá og með 1. júní 2026 eru:
Kostnaður vegna ferðalaga innanlands greiðist almennt eftir reikningi.
Þegar starfsmaður fer erlendis í vinnuferð skal vinnuveitanda greiða ákveðnar uppbætur vegna óhægræðis sem af því leiðir.
Ferðakostnaður á ferðalögum erlendis greiðist með dagpeningum. Af dagpeningum á ferðalögum erlendis ber að greiða allan venjulegan ferðakostnað annan en fargjöld, svo sem kostnað vegna ferða að og frá flugvöllum, fæði, húsnæði, minni háttar risnu, hvers konar persónuleg útgjöld.
Dagpeningar erlendis - auglýsing nr. 1/2025.
Sjá reglur nr. 281/1988 um farangurstryggingar starfsmanna á ferðalögum á vegum ríkisins.
Í kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins (SA) og aðildarfélaga BHM segir að dagpeningagreiðslur til starfsmanna vegna ferða erlendis fylgi ákvörðunum Ferðakostnaðarnefndar ríkisins hafi fyrirtæki ekki sérstakar reglur um greiðslu ferðakostnaðar (grein 7.1).
Heimilt er að færa frádrátt á móti dagpeningum sem launamaður hefur fengið greidda frá launagreiðanda sínum þegar öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:
Sjá nánar á heimasíðu skattsins og um frádrátt kostnaðar á móti ökutækjastyrk.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 23. júní 2026.