Vinnuvikan og dagvinna
Full vinnuvika er 36 virkar vinnustundir hjá ríkinu og Reykjavíkurborg og að jafnaði 35,5 stundir samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM. Mánaðarlaun miðast við vinnuskyldu í dagvinnu.
Full vinnuvika er 36 virkar vinnustundir hjá ríkinu og Reykjavíkurborg og að jafnaði 35,5 stundir samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM. Mánaðarlaun miðast við vinnuskyldu í dagvinnu.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Dagvinna er vinna sem unnin er innan dagvinnutímabils og upp að vikulegri vinnuskyldu samkvæmt kjarasamningi. Mánaðarlaun eru greidd fyrir dagvinnu. Vinna utan dagvinnutímabils eða umfram vinnuskyldu er að jafnaði yfirvinna.
Samkvæmt lögum nr. 88/1971 um 40 stunda vinnuviku mega dagvinnutímar ekki vera fleiri en 40 í viku hverri. Lögin setja þannig hámark á dagvinnu en ekki á heildarvinnutíma. Hámark heildarvinnutíma, að yfirvinnu meðtalinni, er 48 stundir að meðaltali á viku samkvæmt lögum nr. 46/1980, sjá dagleg og vikuleg hvíld.
Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM gildir frá 1. maí 2025:
Aðrir kjarasamningar geta gilt um félagsfólk BHM á almennum vinnumarkaði. Kannaðu hjá aðildarfélaginu hvaða samningur á við.
Stytting vinnuvikunnar er útfærð á hverjum vinnustað. Starfsfólk og stjórnendur ákveða í sameiningu hvort styttingin er tekin daglega, vikulega eða með öðrum hætti, til dæmis í heilum eða hálfum dögum með reglubundnum hætti. Leiðbeiningar og algengar spurningar eru á Mannauðstorgi ríkisins og vef Reykjavíkurborgar.
Ef skipulagi vinnustaðar er breytt einhliða geta reglur um breytingar á störfum og starfskjörum átt við.
Í hlutastarfi er vinnuskylda hlutfallsleg miðað við fullt starf. Hvernig greitt er fyrir vinnu umfram umsamið starfshlutfall fer eftir kjarasamningi. Þitt aðildarfélag veitir upplýsingar um þau ákvæði sem gilda.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 21. nóvember 2026.