Vaktavinna
Vaktavinna er vinna samkvæmt vaktskrá, oft utan dagvinnutímabils. Um hana gilda sérstök ákvæði kjarasamninga um vaktaálag, vaktskrá og hvíld milli vakta.
Vaktavinna er vinna samkvæmt vaktskrá, oft utan dagvinnutímabils. Um hana gilda sérstök ákvæði kjarasamninga um vaktaálag, vaktskrá og hvíld milli vakta.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með breytingum á skipulagi vaktavinnu árið 2021 var vinnuvika vaktavinnufólks í fullu starfi stytt í 36 virkar vinnustundir. Vinnuskylda getur styst frekar á grundvelli vægis vinnuskyldustunda, og greiddur er vaktahvati samkvæmt nánari reglum kjarasamnings. Nánari upplýsingar eru á Mannauðstorgi ríkisins.
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi og er meðal annars sem hér segir (gr. 1.6.1):
Önnur álagsþrep gilda á öðrum tímum samkvæmt kjarasamningi. Brot úr klukkustund greiðist hlutfallslega.
Hjá Reykjavíkurborg er vaktaálag á stórhátíðardögum 120%. Frá kl. 16:00–24:00 á aðfangadag og gamlársdag og kl. 00:00–08:00 á jóladag og nýársdag er álagið 165%. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur birt kynningarefni um breytingar á vaktavinnu. Aðildarfélagið veitir upplýsingar um ákvæði gildandi samninga.
Samkvæmt gr. 2.6 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM:
Við skipulag vakta gilda reglur um 11 stunda samfellda hvíld á sólarhring, vikulegan frídag og 48 stunda hámarksvinnutíma að meðaltali. Við skipulögð vaktaskipti má stytta hvíld í allt að átta klukkustundir. Æskilegt er að vaktir færist réttsælis eftir sólarhringnum, það er morgunvakt, kvöldvakt, næturvakt og síðan hvíld.
Um hvíld, næturvinnu og frítökurétt er nánar fjallað á síðunni dagleg og vikuleg hvíld.
Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 21. nóvember 2026.