Tilkynning veikinda
Tilkynna ber vinnuveitanda um óvinnufærni vegna veikinda eða slyss.
Tilkynna ber vinnuveitanda um óvinnufærni vegna veikinda eða slyss.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Ef þú veikist eða verður fyrir slysi sem veldur því að þú getur ekki sinnt vinnu þinni er mikilvægt að þekkja þau skref sem þarf að taka og þau réttindi sem þú átt.
Meginreglan er einföld: Tilkynna ber vinnuveitanda um óvinnufærni vegna veikinda eða slyss eins fljótt og auðið er.
Í kjarasamningum aðildarfélaga BHM er kveðið á um að yfirmaður geti, í ákveðnum tilvikum, leitað til trúnaðarlæknis til að fá úr því skorið hvort forföll séu réttmæt. Yfirmaður getur krafist vottorðs frá trúnaðarlækni:
Athugaðu: Þér er skylt að gangast undir venjulegar og viðurkenndar læknisrannsóknir sem trúnaðarlæknir telur nauðsynlegar til að skera úr um lögmæti forfalla, enda greiði vinnuveitandi allan kostnað.
Samkvæmt dómum Félagsdóms og Landsréttar (mál nr. 3/2022 og nr. 168/2022) er starfsfólki almennt ekki skylt að mæta til skoðunar eða viðtals hjá trúnaðarlækni vinnuveitanda.
Dómstólar lögðu áherslu á eftirfarandi atriði:
Þótt engin almenn skylda sé til staðar geta komið upp aðstæður þar sem skoðun eða viðtal er nauðsynlegt.
Ef trúnaðarlæknir telur sig ómögulega geta gefið út vottorð um (ó)vinnufærni án þess að hitta þig eða skoða og þú neitar að mæta getur það haft afleiðingar. Í slíkum tilfellum getur læknirinn neitað að staðfesta óvinnufærnina, sem getur leitt til þess að vinnuveitandi líti svo á að fjarvistir þínar séu ekki réttmætar.
Hafðu samband við þitt stéttarfélag ef ágreiningur kemur upp við atvinnurekanda vegna veikinda og fjarvista af þeim sökum.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 30. júní 2026.