Sorgarleyfi
Réttur til sorgarleyfis: Mikilvægur stuðningur við erfiðar aðstæður
Réttur til sorgarleyfis: Mikilvægur stuðningur við erfiðar aðstæður
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Að missa barn, maka eða ganga í gegnum andvanafæðingu eða fósturlát getur breytt lífi fólks á einu augabragði. Við slíkar aðstæður skiptir máli að fólk hafi raunverulegt svigrúm til að takast á við sorg, sinna fjölskyldu sinni og undirbúa endurkomu til starfa þegar aðstæður leyfa.
Lög um sorgarleyfi, nr. 77/2022, tryggja sjálfstæðan rétt til leyfis frá störfum og greiðslna frá Vinnumálastofnun í þeim tilvikum sem lögin taka til. Markmið laganna er að veita foreldrum og öðrum sem falla undir gildissvið laganna svigrúm til sorgarúrvinnslu, styðja við fjölskyldur í breyttum lífsaðstæðum og auka líkur á farsælli endurkomu á vinnumarkað.
Réttur til sorgarleyfis er bundinn við þau tilvik sem lögin tilgreina. Lögin taka einkum til foreldra, forsjáraðila og annarra sem falla undir hugtakið foreldri samkvæmt lögunum og hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði.
Réttur til sorgarleyfis getur stofnast við eftirfarandi aðstæður:
Til foreldra í skilningi laganna teljast foreldri barns eða forsjáraðili samkvæmt barnalögum, auk þeirra sem hafa gegnt foreldraskyldum gagnvart barninu í lengri tíma en 12 mánuði fyrir barnsmissi eða makamissi.
Lögin taka einnig til sorgarstyrks fyrir foreldra sem eru utan vinnumarkaðar, í minna en 25% starfshlutfalli eða í fullu námi, að uppfylltum nánari skilyrðum laganna.
Réttur til sorgarleyfis stofnast þann dag sem missirinn á sér stað. Rétturinn fellur niður 24 mánuðum síðar og þarf því að nýta leyfið innan þess tíma.
Lengd leyfis fer eftir atvikum:
Rétturinn er sjálfstæður réttur þess foreldris sem uppfyllir skilyrði laganna. Það þýðir að rétturinn er ekki háður ákvörðun vinnuveitanda, þótt samráð við vinnuveitanda geti skipt máli um nánari tilhögun leyfisins.
Starfsfólk á rétt á að taka sorgarleyfi í einu lagi. Lögin gera þó ráð fyrir sveigjanleika þegar það hentar betur aðstæðum viðkomandi og starfseminni á vinnustað.
Með samkomulagi við vinnuveitanda er hægt að:
Leyfið má þó ekki vera skemmra en hálfur mánuður í senn. Vinnuveitanda ber að leitast við að koma til móts við óskir starfsfólks um tilhögun sorgarleyfis.
Ef samkomulag næst ekki um aðra tilhögun á starfsfólk rétt á að nýta leyfið í einu lagi frá þeim upphafsdegi sem það ákveður.
Starfsfólk sem hyggst nýta rétt til sorgarleyfis skal tilkynna það vinnuveitanda eins fljótt og kostur er. Tilkynningin skal vera með sannanlegum hætti, til dæmis skrifleg eða rafræn, og þar þarf að koma fram:
Vilji starfsfólk síðar breyta áður tilkynntri tilhögun þarf almennt að tilkynna það vinnuveitanda að minnsta kosti viku áður en ný tilhögun á að taka gildi.
Sorgarleyfi reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum. Það hefur þýðingu fyrir réttindi á borð við veikindarétt, orlofsrétt, lengingu orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkanir, uppsagnarfrest og atvinnuleysisbætur.
Þessi regla er mikilvæg. Hún tryggir að sorgarleyfi skerði ekki stöðu starfsfólks í ráðningarsambandi að því er varðar þau starfstengdu réttindi sem lög og kjarasamningar tengja við starfsaldur eða starfstíma.
Greiðslur í sorgarleyfi eru greiddar af Vinnumálastofnun. Til að eiga rétt á greiðslum þarf foreldri að hafa verið þátttakandi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir barnsmissi, makamissi, andvanafæðingu eða fósturlát.
Mánaðarleg greiðsla nemur almennt 80% af meðaltali heildarlauna og reiknaðs endurgjalds á tilteknu sex mánaða viðmiðunartímabili. Greiðslurnar sæta þó nánari reglum laganna, meðal annars um viðmiðunartímabil, lágmarks- og hámarksgreiðslur, greiðslur eftir á og hugsanlega skerðingu ef greiðslur frá vinnuveitanda koma til á sama tímabili.
Meðan á sorgarleyfi stendur greiðir foreldri að lágmarki 4% af greiðslum í sorgarleyfi í lífeyrissjóð og Vinnumálastofnun greiðir að lágmarki 11,5% mótframlag. Foreldri getur einnig greitt í séreignarsjóð.
Sækja þarf um greiðslur í sorgarleyfi hjá Vinnumálastofnun, rafrænt eða skriflega eftir því sem stofnunin ákveður. Með umsókn þarf að fylgja afrit af tilkynningu til vinnuveitanda þar sem fram kemur upphafsdagur, lengd og tilhögun sorgarleyfis. Ef samkomulag hefur verið gert við vinnuveitanda um aðra tilhögun en upphaflega var tilkynnt þarf afrit af því samkomulagi einnig að fylgja umsókn.
Starfi foreldri við eigin rekstur þarf það að koma fram í umsókn og þar þarf að tilgreina upphafsdag, lengd og tilhögun sorgarleyfis.
Foreldri sem er utan vinnumarkaðar, í minna en 25% starfshlutfalli eða í fullu námi getur átt rétt á sorgarstyrk í stað greiðslna í sorgarleyfi, að uppfylltum skilyrðum laganna.
Sorgarstyrkur er einnig greiddur af Vinnumálastofnun. Um hann gilda sérstakar reglur, meðal annars um fjárhæðir, umsókn, greiðslutímabil og mögulega skerðingu.
Vinnumálastofnun annast framkvæmd laga um sorgarleyfi og greiðslur vegna sorgarleyfis og sorgarstyrks.
Ef starfsfólk er í vafa um rétt sinn gagnvart vinnuveitanda, tilhögun leyfis eða áhrif sorgarleyfis á réttindi samkvæmt kjarasamningi er rétt að leita til síns stéttarfélags.
Sjá einnig lög um sorgarleyfi.
Sorgarmiðstöð sinnir fræðslu og ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem vinna að velferð syrgjenda.
Ljónshjarta eru samtök til stuðnings fólki sem misst hefur maka og barna sem misst hafa foreldri.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 23. júní 2026.