Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.
Frá 1. september 2026 gilda nýjar reglur um skýrslugjöf fyrirtækja og stofnana um kynbundinn launamun. Skýrslugjöfin kemur í stað fyrra kerfis jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar. Markmið breytinganna er að tryggja að starfsfólk fái jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni, og að launaákvarðanir byggist á hlutlægum og kynhlutlausum viðmiðum.
Nýju reglurnar eiga stoð í lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, eins og þeim var breytt með lögum nr. 53/2026, og í reglugerð nr. 946/2026 um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun og eftirlit Jafnréttisstofu.
Fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli skulu á þriggja ára fresti skila Jafnréttisstofu gögnum sem sýna fram á að launakerfi þeirra tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Fjöldi starfsfólks miðast við meðalfjölda á fyrra almanaksári, óháð starfshlutfalli. Stjórnarráði Íslands ber að skila sömu gögnum, óháð fjölda starfsfólks í ráðuneytum þess.
Atvinnurekendum ber að skila eftirfarandi gögnum:
Jafnframt er það forsenda þess að ljúka megi skýrslugjöfinni að fyrirtækið eða stofnunin hafi sett sér jafnréttisáætlun í samræmi við lög.
Samkvæmt reglugerðinni skal atvinnurekandi skila áætlun um úrbætur ef launagreining sýnir að kynbundinn launamunur á reglulegum launum, umreiknuðum í tímakaup, sé meiri en 3,9% og skýrist ekki af málefnalegum sjónarmiðum.
Viðmiðið getur lækkað í samræmi við þróun leiðrétts kynbundins launamunar á vinnumarkaði samkvæmt rannsóknum Hagstofu Íslands.
Í áætlun um úrbætur skal tilgreina til hvaða aðgerða verði gripið, hver beri ábyrgð á framkvæmd þeirra og hvenær þeim skuli lokið. Úrbótum skal lokið fyrir næstu gagnaskil.
Rétt er að árétta að viðmiðið um 3,9% felur ekki í sér heimild til kynbundins launamunar undir þeim mörkum. Samkvæmt lögum er óheimilt að mismuna starfsfólki í launum og öðrum kjörum á grundvelli kyns, hvort sem skilyrði reglugerðarinnar fyrir gerð áætlunar um úrbætur eru uppfyllt eða ekki.
Meðal mikilvægra breytinga er aukin upplýsingagjöf til starfsfólks.
Atvinnurekendum er skylt að kynna starfsfólki niðurstöður launagreiningarinnar og gera þær aðgengilegar. Í kynningunni skulu að lágmarki koma fram tölfræðiupplýsingar um kynbundinn launamun innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
Við upplýsingagjöfina skal gæta persónuverndar og tryggja að ekki sé unnt að rekja upplýsingar um launakjör til einstaklinga.
Starfsfólk heldur jafnframt ótvíræðum rétti sínum til að skýra frá eigin launakjörum og leita leiðréttingar telji það að sér sé mismunað í launum á grundvelli kyns.
Jafnréttisstofa hefur eftirlit með því að atvinnurekendur skili tilskildum gögnum og framfylgi áætlunum um úrbætur.
Stofnunin getur krafist upplýsinga og gagna, gefið fyrirmæli um úrbætur og beitt dagsektum ef atvinnurekandi sinnir ekki lögbundnum skyldum sínum.
Jafnréttisstofa birtir jafnframt opinbera skrá yfir fyrirtæki og stofnanir sem hafa skilað tilskildum gögnum.
Sérstakar aðlögunarreglur gilda um fyrstu gagnaskil samkvæmt nýja kerfinu:
Gagnaskil fara fram í rafrænu þjónustu- og gagnakerfi Jafnréttisstofu.
Þótt nýtt kerfi hafi leyst jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu af hólmi stendur grundvallarreglan um jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óhögguð.
Samkvæmt nýja kerfinu ber atvinnurekendum að sýna reglulega fram á að starfaflokkun, launagreining og launaákvarðanir hvíli á málefnalegum og kynhlutlausum forsendum.
Það skiptir launafólk sérstaklega miklu að starfaflokkun endurspegli raunverulegar kröfur starfa, meðal annars um menntun, sérhæfða þekkingu, ábyrgð og álag. Jafnframt er mikilvægt að atvinnurekendur kynni niðurstöður launagreininga með skýrum og aðgengilegum hætti og bregðist við kynbundnum launamun sem skýrist ekki af málefnalegum sjónarmiðum.
Nýja kerfið haggar ekki rétti starfsfólks til jafnra launa og kjara. Sá réttur er sjálfstæður og gildir óháð því hvort atvinnurekandi hafi uppfyllt skyldur sínar um skýrslugjöf.
Gögn þessi koma frá BHM, seinast uppfærð 27. október 2026.