Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Viska og YKA
          Fréttir

          Viska og YKA í form­legt sam­starf

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Viska og stéttarfélagið YKA í Finnlandi hafa undirritað samkomulag um samstarf í þjónustu við félagsfólk. 

          Þessa dagana er unnið að því að formgera samstarf Visku við sambærileg stéttarfélög á öllum Norðurlöndunum en hugmyndin að baki Visku byggir á norrænum fyrirmyndum og félagið leggur ríka áherslu á að nýta sér reynslu erlendra stéttarfélaga þegar kemur að því að þróa þjónustu og hagsmunagæslu fyrir félagsfólk.

           Á dögunum undirritaði Viska samstarfssamninga við norska stéttarfélagið Samfunnsviterne og við sænska stéttarfélagið Akavia sem kveða á um gagnkvæma þjónustu við félagsfólk við flutning á milli þeirra landa og Íslands. Þannig getur félagsfólk Visku sem flytur til þessara landa nú nýtt sér þjónustu þessara systurfélagaga Visku og fengið upplýsingar og aðstoð við vinnumarkaðstengd mál. Einnig var ákveðið að efla formlegt samstarf félaganna með reglulegri upplýsingamiðlun og  ráðgjöf varðandi þróun þjónustu við félagsfólk. 

          Nú hefur Viska gert sambærilegan samstarfssamning við stéttarfélagið YKA í Finnlandi. Félagið hefur ríflega 14 þúsund félagsmenn og hefur verið frumkvöðull á sviði þjónustu og trygginga fyrir sitt félagsfólk. Félagsfólk Visku sem hyggur á flutning til Finnlands, hvort sem er í nám eða starf, getur nú haft samband við skrifstofu Visku og fengið frekari upplýsingar.