Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Ráðhús Reykjavíkur
          Fréttir

          Viska og FÍN und­ir­rita vilja­yf­ir­lýs­ingu við Reykja­vík­ur­borg

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku og Þorkell Heiðarsson formaður FÍN hafa skrifað undir viljayfirlýsingu við Reykjavíkurborg um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á þróunarlóðum.

          Í upphafi árs gerðu félögin þarfagreiningu um húsnæðisöryggi félagsfólks. Niðurstöður bentu til þess að þörf og eftirspurn eftir húsnæði meðal félagsfólks sé mikil. Í könnuninni kom fram að 11% félagsfólks undir tekju- og eignaviðmið laga um almennar íbúðir og hafa 69% áhuga á að leigja af óhagnaðardrifnu húsnæðisfélagi. Þá sagði 90% félagsfólks sem er á leigumarkaði nær ómögulegt að eignast eigið húsnæði þrátt fyrir mikinn vilja og aðeins 35% telja líklegt að geta fengið hjálp frá foreldrum eða öðrum aðstandendum. Í könnuninni var mikill stuðningur eða 67% við að félögin myndu stofna óhagnaðardrifið leigufélag til að kaupa eða byggja almennar íbúðir.

          Þann 24. mars síðastliðinn gerðu Viska og FÍN samkomulag um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. Samkomulagið markar tímamót fyrir húsnæðisöryggi háskólamenntaðra á vinnumarkaði, en eins og staðan er í dag hafa um 40 þúsund háskólamenntaðir utan ASÍ og BSRB ekkert aðgengi að slíkum úrræðum.

          Í dag undirrituðu Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku og Þorkell Heiðarsson formaður FÍN undir viljayfirlýsingu við Reykjavíkurborg um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á þróunarlóðum. Heiða Björk Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkurborgar undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd borgarinnar, hún sagðist fagna henni mjög og samstarfinu við félögin tvö.

          Viljayfirlýsing Reykjarvíkurborgar, Visku og FÍN

          F.v. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku, Heiða Björk Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkurborgar og Þorkell Heiðarsson formaður FÍN.