Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Viska og FÍN - Leigufélag
          Fréttir

          Viska og FÍN stofna óhagn­að­ar­drif­ið hús­næð­is­fé­lag

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Viska og Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) hafa gert samkomulag um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. Samkomulagið markar tímamót fyrir húsnæðisöryggi háskólamenntaðra á vinnumarkaði, en eins og staðan er í dag hafa um 40 þúsund háskólamenntaðir utan ASÍ og BSRB ekkert aðgengi að slíkum úrræðum.

          11% falla undir viðmið laganna

          Í nýlegri könnun Visku og FÍN kemur í ljós að 11% af rúmlega 8.000 félagsfólki félaganna tveggja falla undir núverandi viðmið um almennar íbúðir. Fólkið sem helst þarf á aðstoð að halda eru einstæðir foreldrar eða ungt fólk sem vinnur fyrir lág laun. Mörg segjast vera föst á leigumarkaði og rúmlega 90% segjast þurfa fjárhagslega aðstoð frá aðstandendum til að kaupa sér íbúðarhúsnæði.

          „Við höfum verulegar áhyggjur af því að háskólamenntaðir sitji eftir þegar kemur að uppbyggingu hagkvæmra húsnæðisúrræða. Þessi hópur hefur hingað til að stórum hluta verið útilokaður frá almenna íbúðakerfinu.“ segir Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Visku.

          Horft til fyrirmynda á borð við Bjarg

          Við uppbyggingu félagsins verður horft til sambærilegra húsnæðisfélaga, m.a. Bjargs, sem hefur á undanförnum árum gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis. Með sambærilegri nálgun vilja Viska og FÍN byggja upp sjálfbært kerfi sem þjónar þörfum félagsfólks til lengri tíma. Leiguverð í slíkum íbúðum getur verið allt að þriðjungi lægra en á almennum markaði sem oft nemur rúmlega hundrað þúsund krónum á mánuði. Það munar um minna og sérstaklega fyrir ungt háskólamenntað fólk sem ber byrðar af námslánum og kemur seinna út á vinnumarkaðinn en aðrir hópar.

          „Með því að niðurgreiða húsnæðiskostnað félagsfólks með þessum hætti viljum við auka velferð þess og ýta undir sparnað, hvort sem fólk hefur í hyggju að kaupa síðar eða vera áfram á leigumarkaði,“ segir Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN.