Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Talmeinafræðingur og barn
          Fréttir

          Laun tal­meina­fræð­inga leið­rétt eft­ir sjö ára bið

          Samningar hafa náðst milli Sjúkratrygginga Íslands og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga eftir sjö ár án nýs heildarsamnings. Með samkomulaginu er verið að samræma kjör talmeinafræðinga kjörum annarra heilbrigðisstétta sem starfa samkvæmt samningum við Sjúkratryggingar, en það hefur verið skýr krafa stéttarinnar frá upphafi samningsviðræðna.

          Leiðréttingin er löngu tímabær, en í könnun Visku, stéttarfélags talmeinafræðinga, kom fram að 71% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga voru óánægð með kjör sín og 41% þeirra sem störfuðu fyrir Sjúkratryggingar höfðu íhugað að hætta störfum. Viska fagnar samkomulaginu og óskar stéttinni til hamingju með þennan langþráða árangur.

          Margra ára samningsleysi sjálfstætt starfandi á enda

          Síðasti heildarsamningur talmeinafræðinga við Sjúkratryggingar rann út árið 2019 og hefur síðan verið framlengdur, án þess að samkomulag næðist um nýjan samning. Þótt kjörin hafi verið uppfærð á tímabilinu hafa hækkanir verið langt undir almennri launaþróun samvkæmt launavísitölu. Nýja samkomulagið markar því löngu tímabæra leiðréttingu á kjörum stéttarinnar.

          Könnun Visku: 71% óánægð með kjör sín

          Viska hefur ásamt Félagi talmeinafræðinga beitt sér fyrir bættum kjörum stéttarinnar. Í könnun félaganna frá desember 2025 kom fram að 71% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga voru óánægð með kjör sín. Þá sögðust um 40% vinna að minnsta kosti átta klukkustundir á viku launalaust við undirbúning og pappírsvinnu.

          Könnunin leiddi einnig í ljós að 82% höfðu litla trú á getu stjórnvalda til að stytta biðlista eftir talmeinaþjónustu. Í lok árs 2024 biðu tæplega 5.000 börn eftir þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga.

          Baráttunni fyrir bættum kjörum er ekki lokið

          Viska fagnar þessum mikilvæga áfanga og óskar talmeinafræðingum til hamingju með árangurinn. Baráttunni fyrir bættum kjörum stéttarinnar er þó hvergi nærri lokið. Viska mun nú setja kjör talmeinafræðinga sem starfa sem launþegar í dagvinnu á oddinn, en að mati félagsins ríkir þar kerfisbundin launamismunun sem brýnt er að leiðrétta.