
Fréttir
Félagsstarf
Kosningar til stjórnar Visku eru hafnar
Alls hafa ellefu manns boðið sig fram til stjórnar og á hver félagi í Visku rétt til að greiða allt að þrjú atkvæði. Félagsfólk getur skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og greitt atkvæði með því að smella hér.
Þau þrjú sem eru efst í kjöri til stjórnar eru kosin til tveggja ára og næstu tvö þar á eftir eru varamenn til eins árs. Athugið að til að stuðla að jafnri kynjaskiptingu þá er um fléttukosningu að ræða, eins og nánar er kveðið á um í 10. grein laga Visku.
Hér má nálgast allar upplýsingar um frambjóðendur.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.
