Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Fram­bjóð­end­ur til stjórn­ar Visku 2026

          Kosið er um þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Þau þrjú sem verða efst í kjöri til stjórnar samkvæmt fléttukosningu eru kosin til tveggja ára og næstu tvö þar á eftir eru varamenn til eins ár. Kosningum til stjórnar Visku eru nú lokið.

          Lesa nánar
          • Andri Steinn Jóhannsson

            Andri Steinn Jóhannsson

            Sérfræðingur í stafrænum rannsóknum hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
            andri.steinn@me.com

            Ég heiti Andri Steinn Jóhannsson, ég er 42 ára og hef verið félagsmaður í Visku frá árinu 2022. Ég er búsettur í Garðabæ ásamt eiginkonu minni og dóttur. Ég hef starfað á sviði upplýsingatækni síðastliðin 23 ár.

            Lestu meira

          • Ásdís Guðmundsdóttir

            Ásdís Guðmundsdóttir

            Verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun
            asgud63@gmail.com

            Ég starfaði um árabil hjá stéttarfélögum í Skagafirði,  bæði sem formaður verkakvennafélagsins Öldunnar og síðar skrifstofustjóri Verkalýðsfélagsins Fram (nú Aldan-stéttarfélag) þar sem ég sinnti meðal annars fræðslumálum, upplýsingagjöf um réttindi, umsýslu sjóða og undirbúningi kjarasamninga. Sú reynsla sýndi mér mikilvægi öflugrar þjónustu við félagsmenn og gagnsærrar og faglegra.

            Lestu meira

          • Eðvald Einar

            Eðvald Einar Stefánsson

            Verkefnastjóri hjá Landspítalanum
            edvaldstef@gmail.com

            Ég býð mig fram til stjórnar Visku með skýra sýn á að bæta réttindi, kjör og að efla þjónustu við félagsfólk. Ég hef starfað á mjög fámennum vinnustað og starfa nú á Landspítalanum sem er einn sá fjölmennasta þannig að ég hef góða innsýn í ólíkar aðstæður á vinnumarkaði.

            Lestu meira

          • Ellen Calmon

            Ellen Calmon

            Sjálfstætt starfandi verkefnastjóri
            calmonellen@gmail.com

            Ég býð mig fram til stjórnar Visku með áherslu á húsnæðismál og hagsmuni félagsfólks á síbreytilegum markaði. Fram undan eru stór verkefni, bæði í kjarasamningum og í tengslum við samstarf Visku og FÍN um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags.

            Lestu meira

          • Freyr Snorrason

            Freyr Snorrason

            Verkefnastjóri á skipulagsdeild Kópavogsbæjar
            freyr.snorrason@gmail.com7775756

            Ég heiti Freyr Snorrason, er 28 ára gamall og bý á Hlíðarenda í Reykjavík með unnustu minni og tveggja ára syni okkar. Ég er menntaður borgarfræðingur og starfa á skipulagsdeild Kópavogsbæjar. Með framboði mínu í stjórn Visku vil ég leggja áherslu á ungt fólk og að styrkja stöðu háskólamenntuðu millistéttarinnar.

            Lestu meira

          • Íris Dögg

            Íris Dögg Björnsdóttir

            Mannauðssérfræðingur
            iris.d.bjornsdottir@gmail.com

            Ég heiti Íris Dögg og eitt af því sem ég brenn hvað helst fyrir eru réttindi og velferð einstaklinga. Ég hef hingað til prófað að vera beggja vegna borðsins, bæði sem mannauðssérfræðingur og sem meðlimur stjórnar FÍF, sem er einmitt eitt af stofnfélögum Visku, en ég sat í stjórn FÍF 2019-2023 m.a. sem ritari og varaformaður. 

            Lestu meira

          • Íris Halla 2

            Íris Halla Guðmundsdóttir

            Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun
            irishalla84@gmail.com

            Ég heiti Íris Halla Guðmundsdóttir og hef ákveðið að bjóða mig fram til stjórnarsetu í Visku. Ég óska eftir stuðningi ykkar og vil leggja mitt af mörkum til að efla réttindi, kjör og þjónustu félagsmanna.

            Lestu meira

          • Sigrún Einarsdóttir 3.jpg

            Sigrún Einarsdóttir

            Verkefna- og viðburðastjóri Samfylkingarinnar
            seinarsdottir@gmail.com

            Kæra félagsfólk – ég býð mig fram til áframhaldandi stjórnarsetu í Visku! Ég hef verið í stjórn Visku frá stofnun, þar áður í stjórn Fræðgarðs frá árinu 2022 og er stolt af þeirri vegferð sem félagið okkar er á. Ég sit einnig í framkvæmdastjórn BHM fyrir hönd Visku.

            Lestu meira

          • Sigurdur_Trausti

            Sigurður Trausti Traustason

            Deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur
            siggitt@gmail.com

            Félags-, kjara- og réttindamál hafa lengi verið mér hugleikin. Réttlætiskennd og vilji til að bæta stöðu annarra hafa orðið til þess að ég hef tekið virkan þátt í félagsstörfum. Ég tók þátt í starfi Fræðagarðs frá 2011 og sat í stjórn félagsins 2016–2022.

            Lestu meira

          • Sveinn Ólafsson

            Sveinn Ólafsson

            Hópstjóri
            sveinn.olafsson@gmail.com

            Ég er með meistaragráðu í upplýsingafræði frá árinu 2000 og aðra í stjórnsýslufræði frá 2024. Ég var í stjórn SBU 2009-2016 og frá 2019. Þegar gengið var til stofnunar Visku, varð ég varamaður í stjórn Visku og var síðan kjörinn í stjórn í fyrstu kosningunum. Ég vinn sem skjalastjóri hjá Samgöngustofu og hef umsjón með bókasafni.

            Lestu meira

          • Unnar Geir Unnarson 3

            Unnar Geir Unnarsson

            Deildarstjóri á Borgarbókasafni Reykjavíkur
            Unnar.Geir.Unnarsson@reykjavik.is

            Ég býð mig fram til stjórnar Visku með það að markmiði að leggja mitt af mörkum til öflugs og framsækins fagfélags sem styður við fjölbreyttan hóp félagsfólks í síbreytilegu starfsumhverfi. Ég hef víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og verkefnastjórnun innan menningar- og opinbera geirans.

            Lestu meira