Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Talmeinafræðingur og barn

          Höfundur

          Vilhjálmur Hilmarsson

          Vilhjálmur Hilmarsson

          hagfræðingur Visku

          Að­för að samn­ings­frelsi heil­brigð­is­stétta

          Viska og Félag talmeinafræðinga telja frumvarp til breytinga á lögum um Sjúkratryggingar Íslands aðför að samningsfrelsi heilbrigðisstétta. Bent er á að sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar hafa setið verulega eftir í launaþróun síðustu ár. Þetta kemur fram í umsögn félaganna um breytingar á lögum um Sjúkratryggingar.

          Í umsögninni  er vísað í nýlega könnun félaganna um starfsaðstæður og kjör talmeinafræðinga á Íslandi. Kemur þar m.a. fram að um 40% talmeinafræðinga sem starfa á samningi við Sjúkratryggingar Íslands (hér eftir „SÍ“) íhuga nú að hætta störfum og 70% eru óánægð með kjör sín. Komið er að ögurstundu í samningaviðræðum sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga við ríkið og verði frumvarpið óbreytt að lögum stefnir í fjöldaflótta úr stéttinni.

          MÓTMÆLUM HARÐLEGA BREYTINGUM Á 38. GREIN LAGANNA

          FTÍ og Viska mótmæla harðlega breytingum á 38. grein laganna sem annars vegar heimilar SÍ að ákvarða gjaldskrá heilbrigðisstétta í samningsleysi og hins vegar meinar heilbrigðisstarfsfólki að rukka markaðsverð fyrir þjónustu með aukagjöldum t.d. á tíma langvarandi samningsleysis. Breytingin vegur að samningsrétti heilbrigðisstétta á Íslandi og skapar skýran hvata fyrir SÍ til langvarandi samningsleysis við allar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir landsins. Ennfremur verður SÍ gert kleift að setja gjaldskrár einhliða og verðleiðrétta þær með launaforsendum fjárlaga, forsendum sem kerfisbundið vanmeta launahækkanir í landinu. Afleiðingarnar eru augljósar; kjör sjálfstætt starfandi heilbrigðisstétta munu versna samanborið við annað launafólk í landinu en það hefur nú þegar gerst í tilfelli talmeinafræðinga vegna skaðlegra ákvæða í samningi við SÍ.

          Launahluti einingaverðs sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga í samningi við SÍ, sem rann út árið 2022, hefur verið verðlagsleiðréttur með launaforsendum fjárlaga síðustu ár, ólíkt launum sjálfstætt starfandi lækna, tannlækna og sjúkraþjálfara. Launahækkanir til sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga á samningi við SÍ voru enda aðeins um helmingur á við launahækkanir annarra árin 2019–2025 ef horft er til launavísitölu Hagstofunnar.

          Sjá mynd að neðan sem sýnir launahækkanir sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga í hlutfalli við hækkun launavísitölunnar á tímabilinu 2019-2025.

          Tillögur að breytingum á 38. grein og önnur atriði

          Í ljósi ofangreinds hvetja félögin stjórnvöld til að endurskoða skaðleg áform um inngrip í samningsrétt heilbrigðisstétta og leggja eftirfarandi til:

          • Aðlaga ætti breytingar á á 38 grein svo:

           „Séu samningar um heilbrigðisþjónustu ekki fyrir hendi skv. IV. kafla er sjúkratryggingastofnuninni í sérstökum tilfellum heimilt að greiða tímabundið, að hámarki í  3 mánuði, kostnað vegna veittrar þjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofnunin gefur út. Heimildin er ekki endurnýjanleg nema að undangengnu óháðu milligönguferli eða gerðardómi. Gjaldskrár samkvæmt ákvæði þessu skulu endurskoðaðar eftir þörfum með tilliti til verðlags- og launaþróunar í landinu þar sem miðað er við vísitölu neysluverðs og launavísitölu Hagstofu Íslands.“

          • Félögin eru mótfallin eftirfarandi viðbót við lögin enda felst í því aðför að samningsrétti heilbrigðisstétta:

          „Þjónustuveitanda sem þiggur greiðslur á grundvelli 1. mgr. er óheimilt að krefja sjúkratryggðan um frekara gjald en leiðir af gjaldskrá og almennri greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu“

          Að lokum vilja félögin ítreka það sem kom fram í fyrri umsögn í samráðsgátt:

          • SÍ verði gert að birta kostnaðarlíkan, forsendur stýringar og áhrifamat á aðgengi áður en ný gjaldskrá tekur gildi. Taka verður til skoðunar hvort rétt sé að skilgreina viðkvæma hópa betur svo tryggt sé að þeir verði undanþegnir magnstýringum sem valda seinkun á endurhæfingar- og þroskaferli.
          • Að  heimild til að láta tiltekinn kostnað falla utan afsláttarstofns nái ekki til talmeinafræðinga, með tilheyrandi auknum útgjöldum fyrir skjólstæðinga.
          • Að auknar heimildir SÍ til gagnaöflunar og eftirlits verði skýrt afmarkaðar, gagnsæjar og í samræmi við persónuvernd og jafnræði. Félögin styðja eðlilegt eftirlit en leggja áherslu á samráð um verklag og viðmið.
          • Að undanþága fyrir „umfangslítinn rekstur“ og smærri starfseiningar t.a.m. einyrkja sé skýr, fyrirsjáanleg og tryggð í reglugerð þannig að talmeinafræðingar þurfi ekki að breyta rekstrarformi án efnislegs ávinnings fyrir þjónustugæði eða gagnsæi