
1% meiri verðbólga, 70 milljarða verri afkoma – Umsögn Visku um fjárlög 2027
Í umsögn Visku um fjárlög 2027 styður félagið markmið ríkisstjórnarinnar um hallaleysi heils hugar og fagnar því að takmarka eigi hluta gjaldahækkana við 2,5%. Hins vegar bendir félagið á að ríkið vinnur gegn markmiðinu með vanhugsuðum verðbólguvaldandi aðgerðum. Lagðar eru til fjórar útgjaldaaðgerðir sem draga úr útgjöldum utan launaliðarins og ríkið hvatt til að takmarka hækkun kílómetragjalds við 2,5%.
Horft til framtíðar kallar Viska eftir uppbyggilegu samtali um velferð og skattheimtu á Íslandi. Ljóst er að ríkisfjármál eru ósjálfbær til lengri tíma og afla þarf meiri tekna en á sama tíma er hagkerfið við þolmörk í skattheimtu. Ef takast á að minnka skattheimtu á Íslandi á næstu árum og halda ríkisfjármálum sjálfbærum þarf að forgangsraða útgjöldum markvisst og styðja betur við vöxt framleiðinna hugvitsdrifinna atvinnugreina. Um þetta er fjallað að neðan.
i. Færa ætti hækkun kílómetragjalds niður í 2,5%: Viska hvetur ríkisstjórnina til að færa hækkun kílómetragjalds niður í 2,5% og fresta frekari tekjuöflun tengt samgöngum fram til 2028 meðan verðbólgan gengur niður. Þó áhrif 16% hækkunar á kílómetragjaldi séu lítil m.t.t. beinna áhrifa á verðbólguna sendir hækkunin röng skilaboð til markaðarins og hefur skaðleg áhrif á verðbólguvæntingar, sem aftur næra verðbólguna. Enn fremur bendir Viska á þá pólítísku áhættu sem felst í frekari hækkunum á samgöngusköttum á tíma Íransstríðsins. Verð bensínlítrans á Íslandi nálgast nú fimm hundruð krónur fyrir eyðsluminnstu bílana að teknu tilliti til kílómetragjaldsins. Aðeins íbúar Hong Kong greiða meira fyrir bensínið í tilfelli eyðsluminni bíla.
ii. Grípa þarf til frekari útgjaldaráðstafana utan launa á árinu 2027: Átta af tíu hagræðingartækifærum ríkisins finnast utan launaliðarins. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 eru tækifæri til frekari útgjaldaráðstafana utan launa til að stefna að hallaleysi. Eftirfarandi aðgerðir myndu t.d. leiða til rúmlega þriggja til fjögurra milljarða króna aukins hagræðis á útgjaldahliðinni:
- Fresta auknu framlagi til nýbyggingar stjórnarráðs til 2028.
- Fresta 20% af tækja- og búnaðarkaupum stofnana til 2028 en hlífa velferðar- og grunnþjónustu. Kalla þyrfti eftir forgangsröðun stofnana.
- Lækka almennan varasjóð tímabundið í lögbundið lágmark.
- Hækka VSK endurgreiðslu úr 20% í 25% en takmarka við nýbyggingar eingöngu. Viðhald yrði undanskilið tímabundið.
Ef takast á að minnka skattheimtu á Íslandi á næstu árum og halda ríkisfjármálum sjálfbærum þarf að styðja betur við vöxt hugvitsdrifinna- og framleiðinna atvinnugreina. Með því að efla nýsköpun og háskólastigið og laða að erlenda fjárfestingu. Þannig verða til arðbær fyrirtæki og hálaunastörf sem skila ríkissjóði miklum tekjum á hvern starfandi einstakling.
Að lokum þarf að forgangsraða útgjöldum ríkisins byggt á stefnumótaðri sýn í stað uppsagna og flats niðurskurðar. Í nýlegri könnun Visku kom fram að 85% sérfræðinga ríkisins sjá tækifæri til hagræðingar og bentu á gríðarlega sóun í innkaupum, gamaldags ferla og úrelta tækni. Með markvissri forgangsröðun útgjalda, hóflegri skattheimtu og aukinni verðmætasköpun má skapa svigrúm til að lækka skatta en tryggja sjálfbær ríkisfjármál til lengri tíma.
