Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Viska skrifað í sandinn, mynd tekið á ská
          Fréttir

          Viska tek­ur til starfa

          Höfundur

          Georg Brynjarsson

          Georg Brynjarsson

          framkvæmdastjóri

          Undir lok síðasta árs sameinuðust Fræðagarður, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Félag íslenskra félagsvísindamanna í stéttarfélagið Visku.

          Tímamót urðu svo um áramótin þegar félagið tók formlega til starfa og skrifstofa Visku opnaði dyr sínar. Á skrifstofu félagsins starfa átta manns og framkvæmdastjóri er Georg Brynjarsson. Skrifstofa félagsins er til húsa í Borgartúni 6.

          Fyrsta starfsárið samanstendur stjórn Visku af stjórnum þeirra þriggja félaga sem komu að stofnun þess. Formaður er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, varaformaður er Kristmundur Þór Ólafsson og gjaldkeri er Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar.

          Um áramótin runnu kjarafélagar Arkitektafélags Íslands (AÍ) einnig inn í Visku og er félagsfólk þá orðið hátt í 5.000.  Í framhaldinu færðist félagsfólk í stéttarfélagshluta Sambands íslenskra myndlistarmanna einnig inn í Visku. Viska er stærsta aðildarfélag BHM og eitt stærsta stéttarfélag sérfræðinga á Íslandi.