
Fréttir
Kannanir
Viska og FÍN kanna viðhorf félagsfólks til óhagnaðardrifinna leigukosta
Með könnuninni vilja stéttarfélögin fá skýrari yfirsýn yfir stöðu og þarfir félagsfólks á leigumarkaði, sem og afstöðu félagsfólks til þess hvort stuðningur sé við að stéttarfélögin bjóði félagsfólki upp á óhagnaðardrifið húsnæði til leigu. Niðurstöðurnar munu nýtast í áframhaldandi vinnu félaganna við hagsmunagæslu og stefnumótun í húsnæðismálum.
Könnunin var send rafrænt til alls félagsfólks 22. janúar og ætti hún því að hafa borist viðtakendum. Hafi félagsfólki ekki borist könnunin er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.
