Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Viska og Bóksalan - samstarf
          Fréttir

          Viska nið­ur­greið­ir náms­bæk­ur fyr­ir há­skóla­nema um fjórð­ung

          Höfundur

          Georg Brynjarsson

          Georg Brynjarsson

          framkvæmdastjóri

          Á dögunum undirrituðu Bóksala stúdenta og Viska samstarfssamning sem felur í sér að Viska niðurgreiðir námsbækur um 25% fyrir alla háskólanema sem eru skráðir í Visku – stúdent. Viska – stúdent er gjaldfrjáls þjónustuleið fyrir alla háskólanema á aldrinum 18 til 35 ára.

          Samstarf af þessu tagi er nýtt af nálinni og á sér enga fyrirmynd hér á landi. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins skólaárs og verður afslátturinn til að byrja með einungis í boði í verslun Bóksölu stúdenta í Háskóla Íslands frá 15. ágúst til og með 30. september gegn framvísun félagaskírteinis Visku – stúdent. Á samningstímanum verður jafnframt skoðaður sá möguleiki að afslátturinn gildi einnig í netverslun Bóksölunnar frá og með næsta skólaári.

          Viska og Bóksala stúdenta

          Á mynd f.v.t.h.: Halldóra Lena Christians verslunarstjóri Bóksölunnar, Gauti Skúlason verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku og Heiður Anna Helgadóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta

          Samningsaðilar eru spenntir fyrir samstarfinu og hlakka til að sjá hvernig háskólanemar taka þessari nýjung.

          Við hjá Bóksölu stúdenta tókum strax vel í það þegar Viska nálgaðist okkur með þessa hugmynd. Þótt Bóksalan sé ekki rekin í hagnaðarskyni og álagningu á námsbækur sé haldið í algjöru lágmarki vitum við að kostnaður við bókakaup getur verið íþyngjandi fyrir háskólanema. Hver man ekki eftir því að vera ungur og blankur í háskólanámi? Við vonum því að samstarfið við Visku auðveldi háskólanemum að kaupa námsbækur. Við erum spenntar að sjá hvernig nemendur taka í þetta,“ segja Halldóra Lena Christians verslunarstjóri Bóksölunnar og Heiður Anna Helgadóttir framkvæmdastjóri Félagsstofunnar stúdenta.

          Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku, tekur undir þetta og segir: „Við hjá Visku erum gífurlega spennt fyrir þessu verkefni. Það er liður í að stækka og þróa Viska – stúdent, sem var sett á laggirnar samhliða stofnun Visku þann 1. janúar 2024. Það kostar háskólanema ekkert að skrá sig í Visku – stúdent og með skráningu fá þeir ekki aðeins 25% afslátt af námsbókum hjá Bóksölu stúdenta heldur einnig aðstoð við að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og ókeypis tryggingar fyrir raftæki, gleraugu og fleira. Með þessu viljum við halda áfram að sýna í verki að háskólanemar skipta máli og tryggja þeim enn betri stuðning frá okkur í Visku.“