Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          peningar í röð
          Fréttir

          Viska hvet­ur fólk með hús­næð­is­lán til að nýta sér­eign­ar­sparn­að skatt­frjálst

          Höfundur

          Vilhjálmur Hilmarsson

          Vilhjálmur Hilmarsson

          hagfræðingur Visku

          Viska hvetur félagsfólk og aðra sem búa í skuldsettu eigin húsnæði til að nýta skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Samkvæmt nýjum lögum, sem tóku gildi 1. október, má nýta úrræðið í allt að 120 mánuði samtals og að hámarki 500.000 kr. á einstakling árið 2026.

          Til að nýta heimildina afturvirkt frá 1. janúar 2026 þarf að sækja um fyrir 1. desember næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma gilda frá og með umsóknarmánuði.

          Það borgar sig að sækja um fyrir 1. desember

          Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort í sínu lagi og sótt er um á þjónustuvef Skattsins með rafrænum skilríkjum:

          • Ef þú keyptir íbúð fyrir meira en 12 mánuðum eða átt ekki rétt á úrræðinu „Fyrsta íbúð“: Þá getur almenna úrræðið átt við þig. Veldu ráðstöfun inn á lán, tilgreindu viðeigandi séreignarsjóð og veldu lánið sem á að greiða inn á. Skilyrði er meðal annars að þú eigir að minnsta kosti 30% eignarhlut í húsnæðinu og hafir þar skráð lögheimili.
          • Ef þú keyptir þína fyrstu íbúð á síðustu 12 mánuðum: Þá getur úrræðið „Fyrsta íbúð“ átt við þig. Þar er bæði hægt að ráðstafa sparnaði inn á lán og sækja um skattfrjálsa útgreiðslu á uppsöfnuðum sparnaði. Úrræðið getur einnig átt við ef þú hefur ekki átt íbúð í fimm ár og uppfyllir önnur skilyrði þess. Umsókn þarf að berast innan 12 mánaða frá undirritun kaupsamnings.

          Byrjaðu að greiða í séreign ef þú vilt nýja úrræðið

          Ef þú ert ekki þegar að greiða í séreign en vilt nýta úrræðið er ráðlegt að gera samning við séreignarsjóð og óska eftir mótframlagi frá launagreiðanda. Með því getur þú flýtt fyrir niðurgreiðslu húsnæðislánsins.

          Viska mun halda áfram að tala fyrir eflingu úrræðisins 

          Viska hvetur alla húsnæðiseigendur til að nýta úrræðið. Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán er skattfrjáls ólíkt almennum útgreiðslum séreignarsparnaðar og er því ígildi húsnæðisstuðnings frá ríkinu. Viska hefur í umsögnum sínum til Alþingis lagt áherslu á mikilvægi úrræðisins fyrir heimilin og mun hvetja til þess að það verði eflt enn frekar á næstu árum.