
Viska fundar með félagsfólki sem starfar hjá Reykjavíkurborg
Fundurinn verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 29. október, frá kl. 11:00 til 12:00 í fundarsal Visku á 3. hæð í Borgartúni 27. Athugið að fundurinn er líka aðgengilegur í gegnum Teams. Um sameiginlega fund Visku og FÍN (Félags íslenskra náttúrufræðinga) er að ræða.
Fyrir frekari fyrirspurnir varðandi fundinn er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.
Hvað Viska gerir næst
Félagsfólk Visku sem hefur fengið uppsögn eða telur sig verða fyrir áhrifum af breytingunum er hvatt til að hafa samband við skrifstofu félagsins eða bóka símtal við sérfræðing.
Viska fer yfir hvert mál fyrir sig og kannar meðal annars hvort málsmeðferð og rökstuðningur Reykjavíkurborgar samræmist lögum, kjarasamningum og reglum borgarinnar.
Félagsfólk sem uppsagnirnar snertir er hvatt til að varðveita öll gögn sem tengjast málinu, þar á meðal uppsagnarbréf, starfslýsingar, ráðningarsamninga og önnur samskipti við vinnuveitandann.
Mikilvægt er að hafa í huga að í uppsagnarfresti halda starfsmenn almennt réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi, þar á meðal rétti til launa, orlofsávinnslu, lífeyrisiðgjöldum og öðrum umsömdum starfskjörum. Réttindi félagsfólks hjá Visku haldast jafnframt út uppsagnarfrestinn.
Viska veitir félagsfólki meðal annars ráðgjöf um:
- lengd uppsagnarfrests og starfskjör á tímabilinu,
- rétt til rökstuðnings og aðgangs að gögnum,
- lögmæti og málsmeðferð uppsagnar,
- áunnin réttindi og uppgjör við starfslok,
- og önnur atriði sem tengjast uppsögninni og næstu skrefum.
