Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Kona, sést ekki í andlit, blóm, gróður
          Fréttir

          Upp­lýs­inga­fund­ur fyr­ir fé­lags­fólk sem sagt var upp störf­um hjá Hafn­ar­fjarð­ar­bæ

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Haldinn verður upplýsingafundur fyrir félagsfólk aðildarfélaga BHM sem sagt var upp störfum hjá Hafnarfjarðarbæ. Fundurinn verður föstudagurinn 6. nóvember, klukkan 10:00 í Borgartúni 27 á 2. hæð.

          Félagsfólk sem uppsagnirnar snerta er hvatt til að varðveita öll gögn sem tengjast málinu, þar á meðal uppsagnarbréf, starfslýsingar, ráðningarsamninga og önnur samskipti við vinnuveitandann.

          Mikilvægt er að hafa í huga að í uppsagnarfresti halda starfsmenn almennt réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi, þar á meðal rétti til launa, orlofsávinnslu, lífeyrisiðgjöldum og öðrum umsömdum starfskjörum. Réttindi félagsfólks hjá Visku haldast jafnframt út uppsagnarfrestinn.

          Viska veitir félagsfólki meðal annars ráðgjöf um:

          • lengd uppsagnarfrests og starfskjör á tímabilinu,
          • rétt til rökstuðnings og aðgangs að gögnum,
          • lögmæti og málsmeðferð uppsagnar,
          • áunnin réttindi og uppgjör við starfslok,
          • og önnur atriði sem tengjast uppsögninni og næstu skrefum.

          Hér er hægt að hafa samband við skrifstofu félagsins eða bóka símtal við sérfræðing.