
Skrifstofur Visku hljóta Svansvottun
Skrifstofur Visku í Borgartúni 27 hafa hlotið Svansvottun samkvæmt endurbótaviðmiðum Svansins, opinberu umhverfismerki Norðurlandanna sem gerir kröfur um gæði, heilnæmi og umhverfisvernd í byggingarframkvæmdum. Þetta er í annað sinn sem Svansvottun er veitt fyrir endurbætur á húsnæði í Borgartúni 27, en endurbótarverkefnið er eitt umfangsmesta Svansvottaða verkefni hér á landi til þessa.
Þetta er í annað sinn sem Svansvottun er veitt fyrir endurbætur á húsnæði í Borgartúni 27, en endurbótarverkefnið er eitt umfangsmesta Svansvottaða verkefni hér á landi til þessa.
Strangar kröfur um endurbætur og heilnæmt inniloft
Svansvottunin felur í sér umfangsmiklar kröfur um alla framkvæmdina – frá undirbúningi til frágangs. Þátttaka byggingarfulltrúa og verktaka felur meðal annars í sér:
- Úttektir áður en niðurrif hefst, þar sem skimað er fyrir skaðlegum efnum, raka og öðrum áhættuþáttum.
- Skipaður rakavarnarfulltrúi sem tryggir viðeigandi rakavarnir meðan á framkvæmd stendur.
- Loftgæðaáætlun og hönnun loftræsikerfa sem miða að því að tryggja góð inniloftsgæði.
- Takmörkun á skaðlegum efnum í byggingarefnum, enda þekkt að ný efni geti losað skaðleg efni í inniloft, sérstaklega fyrstu vikurnar eftir uppsetningu.
Svansvottunin staðfestir að endurbæturnar á Borgartúni 27 uppfylli strangar kröfur um umhverfisvernd, heilsu og gæði – til hagsbóta fyrir starfsfólk Visku, notendur húsnæðisins og umhverfið almennt.
Starfsemi og aðstaða fyrir Visku
Starfsemi Visku fluttist á þriðju hæð í Borgartúni 27 í lok árs 2024 og þar starfa nú tíu starfsmenn félagsins. Á hæðinni er að finna skrifstofur, fundarherbergi og Visku-sal sem rúmar fundi fyrir allt að 80 manns auk annarrar aðstöðu fyrir félagsstarf og þjónustu við félagsfólk.
Svansvottunin er hluti af stefnu Visku um að skapa heilnæmt, sjálfbært og vottunarhæft vinnuumhverfi, í takt við nútímakröfur um lífsgæði og umhverfisábyrgð.
Á myndinni eru Georg Brynjarsson, framkvæmdastjóri Visku og Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun
