
Sjálfstætt starfandi – hvað getum við lært hvert af öðru?
Á fundinum verða Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, Gunnlaugur Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara og varaformaður BHM, og Gunnar Hrafnsson, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna, með innlegg úr ólíkum áttum.
Rætt verður meðal annars um rekstrarform, viðmiðunarfjárhæðir RSK, sveiflukenndar tekjur, flækjustig starfsumhverfisins og lausnir sem hafa reynst vel.
Markmiðið er hagnýtt: að miðla reynslu milli félaga og geira og styrkja aðildarfélög BHM í ráðgjöf og þjónustu við sjálfstætt starfandi félagsfólk.
Nánar um sjálfstætt starfandi á vef Visku
Við hvetjum sem flest til að mæta og taka þátt í samtalinu.
