Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          SFHR og Viska undirritun 2026
          Fréttir

          SFHR og Viska brjóta blað í sögu Há­skól­ans í Reykja­vík

          Höfundur

          Georg Brynjarsson

          Georg Brynjarsson

          framkvæmdastjóri

          Ný staða kjara- og atvinnulífsfulltrúa háskólanema verður sett á laggirnar sem hluti af samstarfssamningi sem Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR) og Viska hafa gert með sér. Er þetta í fyrsta sinn sem slík þjónusta verður í boði fyrir háskólanema Háskólans í Reykjavík (HR).

          Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR (t.h. á mynd) og Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku (t.v. á mynd), undirrituðu samninginn í Sólinni í HR á dögunum. Kjara- og atvinnulífsfulltrúinn mun veita þjónustu og ráðgjöf auk þess að vinna að því að efla vitund háskólanema um sín réttindi á vinnumarkaði.

          Við hjá SFHR erum ótrúlega stolt af því að geta nú boðið nemendum í HR upp á þjónustu sem tengist kjörum og réttindum á vinnumarkaði. Það hefur löngum verið talað um HR sem skóla atvinnulífsins og þess vegna teljum við stöðuna löngu tímabæra. Þetta hefur aldrei verið gert áður hér í HR og því er þetta sögulegur áfangi í þjónustu við nemendur. Við hjá SFHR erum ánægð með samstarfið við Visku og hlökkum til að þróa þetta í góðu samstarfi við Visku,“ segir Rúnar Gauti.

          Við stofnun Visku var komið á fót sérstakri námsmannaþjónustu fyrir háskólanema. Þjónustan virkar þannig að háskólanemar sem skrá sig í Visku fá aðgengi að allri þjónustu Visku og fría snjalltryggingu fyrir tölvu, síma, heyrnartól, gleraugu og hjól.

          Staða kjara- og atvinnulífsfulltrúa háskólanema er að norrænni fyrirmynd þar sem hún hefur sannað mikilvægi sitt. Í samtölum okkar við háskólanema höfum við fundið fyrir því að eftirspurn eftir fræðslu um kjara- og réttindamál hjá ungu fólki er mikil og við viljum svara því kalli. Með því að koma stöðunni á laggirnar viljum við leggja ríka áherslu á að styðja við ungt fólk sem er að afla sér þekkingar og háskólamenntunar, enda gríðarlega mikilvægur hópur fyrir framtíðina. Þannig sýnum við í verki að háskólanemar skipta máli,” segir Gauti.