Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Sitjandi manneskjur þar sem mynd er tekin ofan frá
          Fréttir

          Rit­höf­unda­sam­band Ís­lands og Viska í sam­starf

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Rithöfundasamband Íslands (RSÍ) hefur gert samstarfssamning við Visku – stéttarfélag sem markar mikilvægt skref í því að efla stöðu rithöfunda á vinnumarkaði.

          Með samningnum færist stéttarfélagshluti RSÍ yfir til Visku, sem mun veita félagsfólki RSÍ styrkari stoðir og víðtækari þjónustu á sviði kjara- og réttindamála. Sérfræðingar Visku munu í nánu samráði við RSÍ greina og þróa kjara- og réttindastöðu rithöfunda með það að markmiði að tryggja þeim stuðning og faglega vernd á vinnumarkaði. Þessi breyting felur jafnframt í sér að tenging RSÍ við BHM verður framvegis í gegnum félagsnet rithöfunda og skrifandi stétta innan Visku.

          RSÍ og Viska undirrita samstarfssamning.jpg

          Margrét Tryggvadóttir formaður RSÍ (t.v.) og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku (t.v.).

          Með þessari breytingu fá félagar í RSÍ aðgang að þjónustu Visku – stærsta aðildarfélagi BHM með tæplega sex þúsund manns – sem sérhæfir sig í hagsmunum háskólamenntaðra á vinnumarkaði. Félagsfólk í RSÍ getur leitað til sérfræðinga Visku varðandi öll kjara- og réttindamál og notið þeirrar þjónustu sem félagið veitir.