
Orri Thor ráðinn til starfa
Verkefnastjóri Visku – stúdent er nýtt stöðugildi sem hefur það að markmiði að efla þjónustu Visku við háskólanema í gegnum námsmannaþjónustu félagsins, Visku – stúdent. Auk þess að þróa lausnir og vinna að verkefnum sem mæta þörfum háskólanema mun verkefnastjóri sjá um gerð og eftirfylgni samstarfssamninga og vinna með nemendafélögum að sameiginlegum verkefnum.
Orri lauk B.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík á þessu ári og stundar nú M.Sc.-nám í fjármálum fyrirtækja við sama skóla. Hann er varaforseti Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík og menntasjóðsfulltrúi stúdenta einkarekinna háskóla en hefur áður starfað sem aðstoðarkennari við verkfræðideild skólans.
„Til þess að þjónusta háskólanema enn betur og efla Visku – stúdent vildum við fá háskólanema í lið með okkur. Það er því mikill styrkur fyrir okkur að fá Orra til starfa enda hefur hann, þrátt fyrir ungan aldur, mikla reynslu af störfum innan stúdentahreyfingarinnar. Sérfræðiþekking Orra þungt og mun styrkja Visku í þeirri vegferð að styðja enn betur við háskólanema.“

