
Opinn fundur fyrir íþróttafræðinga
Á fundinum munum við ræða ræða sameiginlegar áskoranir, þróun fagsins og hvernig íþróttafræðinga geta þétt raðirnar.
Á fundinum verða einnig ræddir möguleikar þess að stofna sérstakt fagfélag fyrir íþróttafræðinga. Hingað til hefur ekki verið starfrækt fagfélag íþróttafræðinga en úr því er mikilvægt að bæta. Íþróttafræðingar eru fjölmenn stétt á íslenskum vinnumarkaði og fer fjöldi þeirra ört vaxandi. Þekking þeirra nýtist á ólíkum sviðum samfélagsins og þess vegna sinna þeir fjölbreyttum störfum, hvort sem er á opinberum eða almennum vinnumarkaði. Íþróttafræðingar þurfa vettvang til þess að efla faglegt starf, miðla þekkingu og ræða þróun, áskoranir og tækifæri í starfi.
Fundurinn fer fram í fundarsölum Visku á 3. hæð í Borgartúni 27, þriðjudaginn 26. maí frá kl. 17:00 til 19:00.
Dagskrá:
- Björn Orri Hermannsson opnar fundinn
- Hvað er Viska og til hvers erum við? Samtal við formann og hagfræðing Visku
- Léttar veitingar
