Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          visku borðfáni með manneskju í bakgrunn
          Fréttir

          Opið fyr­ir fram­boð til stjórn­ar kjara­deild­ar tal­meina­fræð­inga í Visku

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Opnað hefur verið fyrir framboð til stjórnar kjaradeildarinnar og er framboðsfrestur til og með 12. maí. Formaður er kosinn sér og stjórn sér í rafrænni kosningu sem fer fram samtímis. Athugið að til að stuðla að jafnri kynjaskiptingu þá er um fléttukosningu að ræða, sjá nánar í 10. gr. laga Visku.

          Kosið er um:

          • Formann til tveggja ára
          • Tvo til fjóra aðalmenn til tveggja ára

          Kosning fer fram dagana 13. til 18. maí en nánari upplýsingar um kosningu berast félagsfólki í kjaradeildinni síðar. 

          Tilkynning um framboð

          Hægt er að bjóða sig fram með því að senda tölvupóst á viska@viska.is. Í tölvupóstinum skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:

          • Nafn
          • Kennitala
          • Kyn frambjóðanda
          • Starfstitill
          • Mest 200 orð um frambjóðanda
          • Hvort frambjóðandi sé að bjóða sig fram í stöðu formanns eða stjórnarmanns

           Upplýsingar um frambjóðendur verða sendar á félaga í kjaradeild talmeinafræðinga. Frambjóðendum er heimilt að láta fylgja með krækjur á aukaefni til kynningar á sér vegna framboðs síns til stjórnar, t.d.:

          • Kynningarbréf
          • Vefsíða
          • Samfélagsmiðlar
          • Kynningarmyndband
          • Frambjóðandi fær staðfestingu á móttöku á framboði sínu eins fljótt og auðið er.

          Kjörgengi

          Félagsfólk í Visku sem hefur menntað sig eða stundar nám í talmeinafræði og hefur innt af hendi a.m.k. eina greiðslu félagsgjalda á þriggja mánaða tímabili fyrir þann mánuð sem kosningar hefjast (í þessu tilviki maí) hefur bæði kjörgengi og atkvæðisrétt. Hægt er að kynna sér greiðslu félagsgjalda inni á "Mín Viska" undir flipanum „Iðgjöld“. Háskólanemar í talmeinafræði sem eru skráðir í félagið en eru ekki launafólk meðan á námi stendur hafa bæði kjörgengi og atkvæðisrétt.

          Annað

          Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.