Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Visku borðfáni
          Fréttir

          Opið fyr­ir fram­boð til stjórn­ar

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Opnað hefur verið fyrir framboð til stjórnar Visku og er framboðsfrestur til og með 30. mars.

          Kosið er um:

          • Þrjá stjórnarmenn til tveggja ára
          • Tvo varamenn til eins árs

          Þau þrjú sem verða efst í kjöri til stjórnar eru kosin til tveggja ára og næstu tvö þar á eftir eru varamenn til eins árs. Athugið að til að stuðla að jafnri kynjaskiptingu þá er um fléttukosningu að ræða, sjá nánar í 10. gr. laga Visku.

          Tilkynning um framboð

          Hægt er að bjóða sig fram með því að senda tölvupóst á viska@viska.is. Í tölvupóstinum skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:

          • Nafn
          • Kennitala
          • Kyn frambjóðanda
          • Starfstitill
          • Mest 200 orð um frambjóðanda

          Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á vef Visku. Frambjóðendum er heimilt að láta fylgja með krækjur á aukaefni til kynningar á sér, t.d.:

          • Mynd af frambjóðanda
          • Kynningarbréf
          • Vefsíðu
          • Samfélagsmiðla
          • Kynningarmyndband

          Frambjóðandi fær staðfestingu á móttöku á framboði sínu eins fljótt og auðið er.

          Kjörgengi

          Félagsfólk sem innt hefur af hendi a.m.k. eina greiðslu félagsgjalda á þriggja mánaða tímabili fyrir þann mánuð sem kosningar hefjast (í þessu tilviki apríl) hefur bæði kjörgengi og atkvæðisrétt. Hægt er að kynna sér greiðslu félagsgjalda inni á Mín Viska undir flipanum „Iðgjöld“. Háskólanemar sem eru skráðir í félagið en eru ekki launafólk meðan á námi stendur hafa bæði kjörgengi og atkvæðisrétt.

          Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.