Aðrir þar á meðal háskólanemar, fólk í hlutastarfi, í veikindum eða fæðingarorlofi, sem og verkafólk í fullu starfi mun þurfa að sætta sig við minni stuðning þó að þörfin sé meiri. Er þetta meðal þess kemur fram í umsögn Visku við drög að frumvarpi um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán.
Viska leggur til þrjár breytingar á frumvarpinu:
Í fyrsta lagi að tekjulægri hópar geti nýtt fullan stuðning. Með því að heimila viðbótargreiðslur úr séreign í lok árs geti allir fengið sama heildarstuðning, ekki bara tekjuhærri.
Í öðru lagi að hámarkið verði hækkað í 675 þúsund krónur árið 2026. Stuðningurinn hefur rýrnað verulega frá 2014 og hækkunin er mikilvæg, meðal annars fyrir þá sem þurfa að skuldsetja sig aftur til að kaupa aðra fasteign.
Í þriðja lagi að hámarkið hækki árlega með verðlagi auk 2% álags frá 2027. Það tryggir að stuðningurinn haldi í við fasteignaverð og minnki ekki með tímanum.

