Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Talmeinafræðingur og barn
          Fréttir

          Ný stjórn kjara­deild­ar tal­meina­fræð­inga í Visku

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Opnað var fyrir framboð til stjórnar kjaradeildar talmeinafræðinga í Visku þann 6. maí síðastliðinn og rann framboðsfrestur út á miðnætti í gær, þriðjudaginn 12. maí.

          Hægt var að bjóða sig fram í embætti formanns til tveggja ára og í embætti tveggja til fjögurra aðalmanna til tveggja ára.

          Eitt framboð barst í embætti formanns og var það frá Lindu Björk Markúsardóttur. Hún telst því sjálfkjörin formaður kjaradeildar talmeinafræðinga til næstu tveggja ára.

          Fjögur framboð bárust í fjögur laus sæti aðalmanna. Þau voru frá Evu Engilráð Thoroddsen, Rannveigu Rós Ólafsdóttur, K. Stellu Ingvarsdóttur og Þórunni Hönnu Halldórsdóttur. Teljast þær sjálfkjörnir aðalmenn í stjórn kjaradeildarinnar til næstu tveggja ára.

          Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.