Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Viska og Mental
          Fréttir

          Náms­lína fyr­ir trún­að­ar­menn

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Viska og Mental ráðgjöf hafa gert með sér samkomulag um þróun heildstæðrar námslínu fyrir trúnaðarmenn. Námslínan er hluti af markvissri uppbyggingu á hlutverki trúnaðarmanna og sameinar staðbundnar vinnustofur, rafræna fræðslu og hagnýta verkefnavinnu.

          Á næstu misserum hyggst Viska stórefla trúnaðarmannakerfi sitt. Félagið mun bæði fjölga trúnaðarmönnum innan sinna raða og leggja aukna áherslu á fræðslu, faglega umgjörð og stuðning við trúnaðarmenn. Samkomulagið við Mental ráðgjöf er mikilvægt skref í þeirri vegferð og endurspeglar skýran metnað til að styrkja trúnaðarmenn í sífellt flóknara og krefjandi starfsumhverfi.

          Innan námslínanna eru vinnustofur þar sem m.a. verða rædd:

          • hlutverk og ábyrgð trúnaðarmanna í nútímavinnuumhverfi
          • geðheilbrigði á vinnustað, viðkvæm samtöl, erfið samskipti og fyrstu viðbrögð
          • raunveruleg dæmi úr starfi trúnaðarmanna

          Námslínan er sett upp sem blandað lærdómsferli þar sem staðbundin fræðsla, rafræn fræðsla og sjálfstæð verkefnavinna styðja hvert annað og mynda samfellda heild. Áætlað er að fræðslan hefjist á haustmánuðum og mun Viska upplýsa trúnaðarmenn sína nánar þegar nær dregur.

          Nánari upplýsingar um hlutverk trúnaðarmanna og starf þeirra má finna á heimasíðu Visku. Félagsfólk sem hefur áhuga á að taka að sér trúnaðarmannshlutverk á sínum vinnustað er hvatt til að hafa samband við skrifstofu félagsins.