Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          morgunverðarfundur Visku um gervigreind
          Fréttir

          Nám­skeið fyr­ir fé­lags­fólk hjá Starfs­þró­un­ar­setri BHM

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Félagsfólki býðst að sækja valin námskeið hjá Endurmenntun HÍ og fá styrk í gegnum Starfsþróunarsetrið. Þá getur félagsfólk einnig skráð sig á eitt námskeið sem kemur ekki til frádráttar á styrkupphæð einstaklinga, sér að kostnaðarlausu.

          Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi.

          Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á „Mínar síður“ á vef BHM. Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Ef afsláttarkóðinn er notaður á fleiri en eitt námskeið er veittur sjálfkrafa styrkur fyrir þeim námskeiðum sem kemur til frádráttar á inneign viðkomandi hjá Starfsþróunarsetrinu.

          Undir flipanum „Iðgjöld“ á Mínum síðum á vef BHM geta félagar séð hvort greiðslur séu að berast í Starfsþróunarsetrið. Hér er hægt að finna frekari upplýsingar um aðild að Starfsþróunarsetrinu.

          Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að hafa samband við skrifstofu Visku.