Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Hringlaga gluggi ráðhús reykjavíkur
          Fréttir

          Morg­un­verð­ar­fund­ur BHM: Þró­un og horf­ur á vinnu­mark­aði

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Hvert stefnir íslenskur vinnumarkaður – og hvaða tækifæri og áskoranir bíða okkar á næstu árum? BHM boðar til morgunverðarfundar fimmtudaginn 26. febrúar kl. 08:30–10:30 í Norræna húsinu. Þar verður rýnt í stöðu og þróun vinnumarkaðarins.

          Á fundinum verða kynntar nýjar greiningar og spár, fjallað um atvinnustefnu stjórnvalda og horft til framtíðarþarfa atvinnulífsins – sérstaklega þegar kemur að háskólamenntuðu starfsfólki. Einnig verður rætt um hlutverk stéttarfélaga í mótun vinnumarkaðar til framtíðar, bæði innanlands og í alþjóðlegu samhengi.

          Kynntar verða nýjar greiningar Vinnumálastofnunar á þróun atvinnuþátttöku og sviðsmyndir, hvar störf skapast og hvar þau tapast m.t.t. menntunar. Litið verður til samanburðar milli geira og þróunar vinnumarkaðar til framtíðar. Jafnframt mun Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ræða framtíðarsýn stjórnvalda í nýrri atvinnustefnu og Ingvar Freyr Ingvarsson hagfræðingur BHM, fjalla um hvernig stéttarfélög geta haft áhrif á mótun vinnumarkaðar til framtíðar.

          Dagskrá:

          8:30 - Hús opnar - morgunverður

          9:00 - Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

          9:15 - Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra

          Verðmætasköpun í fjölbreyttu atvinnulífi

          9:30 - Ásta Ásgeirsdóttir, deildarstjóri greiningardeildar hjá Vinnumálastofnun

          Þróun á innlendum vinnumarkaði – staðan eftir hópum og landssvæðum

          9:45 - Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM

          Vinnumarkaður á næstu árum – hver vinnur, hvar og á hvaða forsendum?

          10:00 - Pallborðsumræður þar sem rýnt verður í stöðu og þróun á vinnumarkaði.

          Í pallborðsumræðum verða:

          • Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar
          • Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands
          • Páll Ásgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Starfsþróunarseturs BHM
          • Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM er fundarstjóri.

          Fundurinn er opinn öllum, og hvetur BHM félagsfólk aðildarfélaga og hagaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni um mikilvægar áskoranir og tækifæri á vinnumarkaði næstu misseri.

          Nánari upplýsingar um dagskrá verður birt síðar.

          Fundinum verður streymt.

          Skráning fer fram hér.