Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Ung kona situr með barn úti að sumri til
          Fréttir

          Morg­un­verð­ar­fund­ur BHM: Staða mæðra á vinnu­mark­aði

          Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur BHM fyrir morgunverðarfundi um stöðu mæðra á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 6. mars kl. 8:30–10:30.

          Á fundinum verður leitast við að varpa ljósi á stöðu mæðra á vinnumarkaði, áhrif barneigna á tekjur þeirra og lífeyri og hvernig umönnunarbilið er að meiri hluta til brúað af mæðrum.

          Þrátt fyrir að jafnrétti mælist mikið á Íslandi í alþjóðlegum samanburði eru áhrif barneigna á stöðu kynjanna á vinnumarkaði enn misjöfn. Rannsóknir sýna að umönnun og ólaunuð heimilisstörf dreifast ekki jafnt milli foreldra, og hafa konur yfirleitt meiri ábyrgð á þessum verkefnum. Þetta hefur bein áhrif á þátttöku þeirra á vinnumarkaði, tækifæri til framgangs í störfum og launaþróun til lengri tíma.

          Opinber stefnumótun — allt frá fæðingarorlofi til þjónustu við fjölskyldur og skipulags vinnustaða — mótar í raun þann ramma sem foreldrar lifa innan. Í dag aðlaga mæður þátttöku sína á vinnumarkaði fjölskyldulífinu í mun meira mæli en feður. Þess vegna er þörf á að ræða möguleikana og tækifærin sem við höfum til að brúa umönnunarbilið. Með samtakamætti hins opinbera og aðila vinnumarkaðarins má lagfæra stöðuna öllu samfélaginu í hag.

          Dagskrá

          8:30 – Hús opnar - morgunverður.

          9:00 – Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

          9:15 – Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur BHM. Fjallar um stöðu kvenna á vinnumarkaði – helstu tölur og dæmi sem varpa ljósi á stöðuna

          9:30 – Sunna Símonardóttir, formaður Jafnréttisnefndar BHM og lektor við Háskólann á Akureyri. Fjallar um umönnunarbilið og áhrif þess á vinnumarkaðsstöðu foreldra.

          9:45 – Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands. Fjallar um fæðingarorlofskerfið, þróun þess, breytingar á lögum og árangur – og tengir við stöðu kvenna á vinnumarkaði.

          10:00 – Pallborðsumræður

          - Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

          - Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur

          - Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu

          - Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og formaður aðgerðahópsins Brúum umönnunarbilið

          Fundurinn er opinn öllum, og hvetur BHM félagsfólk aðildarfélaga og hagaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni um mikilvægar áskoranir og tækifæri mæðra á vinnumarkaði.

          Fundinum verður streymt.

          Skráning fer fram hér.