Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Ráðhús Reykjavíkur
          Fréttir

          Lýsa yfir þung­um áhyggj­um af fjölda­upp­sögn­um Reykja­vík­ur­borg­ar

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Viska stéttarfélag lýsa yfir þungum áhyggjum af skipulagsbreytingum og uppsögnum 86 starfsmanna hjá Reykjavíkurborg, umfangi aðgerðanna, framkvæmd þeirra og áhrifum á starfsfólk og þjónustu við íbúa borgarinnar.

          Félögin taka undir þau markmið að efla fagteymi, samþætta þjónustu, tryggja snemmtækan stuðning og einfalda leiðir fólks að velferðarþjónustu. Það eru markmið sem félagsráðgjafar, sálfræðingar og annað fagfólk innan aðildarfélaga BHM hafa lengi lagt áherslu á. Það vekur þó alvarlegar spurningar þegar fjölmennur hópur fagfólks fær uppsagnarbréf á sama tíma og Reykjavíkurborg segist ætla að styrkja framlínuþjónustu, tryggja samfellu og koma í veg fyrir þjónusturof. Aðgerðir sem slíkar vekja upp efasemdir að markmiðum borgarinnar verði náð. 

          Verkefnin hverfa ekki þótt störfin hverfi

          Á bak við hvert stöðugildi eru verkefni og fólk sem þarf á þjónustu að halda. Börn og fjölskyldur hætta ekki að þurfa stuðning þótt skipuriti sé breytt eða starfstöðvar færðar til. Þegar fagfólk hverfur úr starfi getur rof orðið á þjónustu og mikilvæg þekking á aðstæðum einstaklinga og fjölskyldna tapast. Ef verkefni þeirra sem hverfa færast yfir á þá sem eftir standa þarf borgin að sýna fram á hvernig komið verði í veg fyrir aukinn málafjölda á hvern starfsmann, meira vinnuálag og minni tíma til beinnar þjónustu.

          Áhrif uppsagnanna ná ekki aðeins til þeirra sem fengu uppsagnarbréf 25. ágúst heldur hafa þau áhrif á starfsanda þeirra sem eftir verða, meira álagi og minna starfsöryggi, og að lokum á þjónustuþegana sjálfa. Þá hefur einnig komið í ljós að þessar miklu breytingar eru því sem næst óútfærðar sem aftur eykur á óöryggi starfsfólks.

          Undirrituð aðildarfélög BHM standa með félagsfólki sínu

          Undirrituð stéttarfélög innan BHM standa þétt við bakið á því starfsfólki sem þessar breytingar snerta. Félögin eru nú að fara yfir stöðu félagsfólks, þar á meðal þeirra sem fá boð um önnur störf með breyttum verkefnum eða lakari launakjörum og gæta þess að réttindi þeirra samkvæmt kjarasamningi og ráðningarsambandi séu virt.

          Félögin óska eftir skýrum svörum frá Reykjavíkurborg um forsendur og framkvæmd breytinganna, áhrif þeirra á starfsfólk, málafjölda og vinnuálag og hvernig tryggt verði að þjónusta við börn, fjölskyldur og aðra viðkvæma hópa sem treysta á þjónustu borgarinnar skerðist ekki. 

          Félögin telja einnig mikilvægt að árétta að ákvarðanir sem þessar eru ekki teknar í samráði við stéttarfélög, sem einungis fá tilkynningu um ákvarðanir sem eru einhliða teknar af stjórnendum borgarinnar. Við leggjum áherslu á að þegar vinnustaðir vinna að endurskipulagningu sé mikilvægt að að tryggja raunverulegt samráð við starfsfólk, trúnaðarmenn og fagfélög. Enn fremur að hagræðing sem felst í því að segja upp starfsfólki og tapa þar með áratuga reynslu og þekkingu og ástríðu fyrir starfi getur reynst vinnustað dýrkeypt. Uppsagnir sem þessar geta leitt til aukins álags á starfsfólk, lengri bið eftir þjónustu eða lakari stuðningi við fólk sem þarf á þjónustunni að halda. 

          Yfirlýsing í heild sinni.