Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Maður að ganga upp stiga
          Fréttir

          Launa­hækk­an­ir á al­menn­um vinnu­mark­aði

          Höfundur

          Júlíana Guðmundsdóttir

          Júlíana Guðmundsdóttir

          lögmaður hdl.

          Viska er með kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda. Í þeim samningum er kveðið á um að hækkanir á almennum markaði nái til félagsfólks Visku.

          Kjarasamningur Visku við Samtök atvinnulífsins

          Félagsfólk í Visku sem starfar á almennum vinnumarkaði og vinnur eftir kjarasamningi félagsins við SA á rétt á a.m.k. einu launaviðtali á ári. Þar getur félagsmaður samið um breytingar á sínum kjörum, t.d. hækkun á launum sínum eða hvað annað sem vinnuveitandi og félagsmaður koma sér saman um.

          Þegar kemur að launahækkunum þá skal hafa til hliðsjónar þær launabreytingar sem almennt er samið um á almennum markaði.

          Í þeim kjarasamningum sem nýverið voru samþykktir á almennum markaði er kveðið á um eftirfarandi lágmarkshækkanir.

          • 1. febrúar 2024: 3,25%
          • 1. janúar 2025: 3,50%
          • 1. janúar 2026: 3,50%
          • 1. janúar 2027: 3,50%

          Félagsfólk í Visku sem starfar á almennum markaði á að lágmarki rétt á þessum hækkunum.

          Ef þú hefur ekki fengið þessa hækkun þá skaltu óska eftir launaviðtali við vinnuveitanda þinn og athugaðu að sérfræðingar Visku geta aðstoðað þig við að undirbúa þig undir viðtalið.

          Kjarasamningur Visku við Félag atvinnurekenda

          Í kjarasamningi félagsins við Félag atvinnurekanda eru almenn ákvæði um réttindi og skyldur, s.s. vinnutíma, orlof og veikindarétt auk almennra launahækkana. Miðlægir kjarasamningar tryggja lágmarkskjör og réttindi félagsfólks Visku. Í samningunum er að finna ákvæði um launahækkanir, orlof, viðbótagreiðslur, fræðslu og önnur réttindi.

          Launakjör á samningstímanum skulu taka hlutfallshækkun, með krónutöluhækkun að lágmarki, sem hér segir:

          • 1. febrúar 2024: 3,25% en þó að lágmarki kr. 23.750
          • 1. janúar 2025: 3,50% en þó að lágmarki kr. 23.750
          • 1. janúar 2026: 3,50% en þó að lágmarki kr. 23.750
          • 1. janúar 2027: 3,50% en þó að lágmarki kr. 23.750

          Aðrir kjaratengdir liðir kjarasamninga hækka sem hér segir, nema um annað hafi verið samið: um 3,25% 1. febrúar 2024 og um 3,50% 1. janúar árin 2025, 2026 og 2027:

          • 1. febrúar 2024: 3,25%
          • 1. janúar 2025: 3,50%
          • 1. janúar 2026: 3,50%
          • 1. janúar 2027: 3,50%