Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Pride_2022
          Fréttir

          Hýr vinnu­mark­að­ur – sam­tal um stöðu hinseg­in fólks á vinnu­mark­aði

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          BHM, ASÍ, BSRB og KÍ standa fyrir opnum fundi í tilefni af Hinsegin dögum í Iðnó föstudaginn 7. ágúst kl. 16:00–17:00.

          Á fundinum verður fjallað um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar. 

          Boðið verður upp á stutt fræðandi erindi og samtal aðila vinnumarkaðarins um áskoranir, bakslag og fordóma, en einnig þann ávinning sem felst í því að stuðla að inngildandi og öruggustarfsumhverfi.

          Erindi:
          Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku – stéttarfélags: Efnahagsleg staða hinsegin fólks
          Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78: Hinsegin vottun

          Í pallborði:
          Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ
          Hafþór Óskarsson, grunnskólakennari
          Irma Alexandra, forritari og atvinnurekandi

          Fundarstýra: Þorbjörg Þorvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Samtakanna ’78.

          Viska hvetur félagsfólk eindregið til að mæta, taka þátt í samtalinu og sýna samstöðu með hinsegin fólki á vinnumarkaði.

          Sjá Facebook viðburð.