Beint í efni
Karphúsið andyri og tré sumar
Fréttir

Fram­leng­ing kjara­samn­ings Visku og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins

Höfundur

Georg Brynjarsson

Georg Brynjarsson

framkvæmdastjóri

Viska hefur undirritað endurnýjaðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) sem tekur afturvirkt gildi frá 1. maí 2025. Samningurinn byggir í megindráttum á fyrri samningi aðila en felur jafnframt í sér ýmsar breytingar sem styrkja réttindi félagsfólks Visku.

Breyting hefur verið gerð á ákvæðum um laun, þannig að starfsmaður sem ekki fær að lágmarki þær launahækkanir sem kjarasamningur kveður á um á almennum vinnumarkaði á rétt á rökstuddu viðtali við vinnuveitanda. Slíkt viðtal skal fara fram innan mánaðar frá því að krafa þess efnis er sett fram. Þá hefur réttur til fjarveru vegna veikinda barns verið styrktur þannig að hann nær nú einnig til barna á aldrinum þrettán til sextán ára í alvarlegum tilfellum sem leiða til sjúkrahúsinnlagnar.

Viska og SA - Undirritun 2025

Á myndinni eru f.v.t.h. Gauti Skúlason verkefnastjóri samskipta og markaðsmála hjá Visku, Júlíana Guðmundsdóttir lögmaður Visku, Guðmundur Heiðar Guðmundsson og Harpa Rún Glad lögmenn á vinnumarkaðssviði SA.

Þá hafa orðið breytingar á reglum um uppsöfnun orlofsréttinda. Starfsmaður sem hefur unnið í fimm ár í sömu starfsgrein á rétt á 25 virkum dögum í orlof, en hafi hann starfað í fimm ár hjá sama atvinnurekanda, á hann rétt á 27 virkum dögum. Ef starfsmaður hefur unnið í tíu ár hjá sama atvinnurekanda, hækkar réttur hans í 30 virka daga. Þá gildir einnig að starfsmaður sem hefur öðlast 30 daga orlofsrétt hjá fyrri atvinnurekanda öðlast þann rétt á ný eftir þriggja ára starf hjá nýjum atvinnurekanda, að því gefnu að rétturinn hafi verið staðfestur.

Frá og með 1. maí 2026 taka gildi frekari breytingar. Þá mun starfsmaður, sem hefur starfað í sex mánuði hjá sama fyrirtæki, eiga rétt á 25 dögum í orlof. Að loknum fimm árum í sömu starfsgrein hækkar rétturinn í 26 daga. Ef starfsmaður hefur annaðhvort starfað í fjögur ár hjá sama fyrirtæki eða tíu ár í sömu starfsgrein, á hann rétt á 28 dögum. Eftir sex ára starf hjá sama fyrirtæki hækkar orlofsrétturinn í 30 daga. Réttur sem hefur áunnist hjá fyrri atvinnurekanda endurnýjast eftir tveggja ára starf hjá nýjum atvinnurekanda, að því gefnu að hann hafi verið staðfestur.

Að auki hafa samningsaðilar sammælst um að hefja sameiginlega vinnu við mótun stefnu um framtíðarhlutverk starfsmenntunarsjóða og hvernig þeir tengjast starfsþróun og starfsmenntun innan fyrirtækja á almennum vinnumarkaði. Þessi vinna er sérstaklega mikilvæg í ljósi hraðra tæknibreytinga sem hafa áhrif á starfsvettvang háskólamenntaðra sérfræðinga.

Hér má sjá kjarasamning Visku við Samtök atvinnulífsins.