Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          visku borðfáni með manneskju í bakgrunn
          Fréttir

          Fé­lags­fund­ur hald­inn með starfs­fólki Lista­há­skóla Ís­lands

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Þann 16. september hélt Viska félagsfund fyrir félagsfólk sitt sem starfar hjá Listaháskóla Íslands (LHÍ). Góð þátttaka var á fundinum, bæði í Borgartúni og á fjarfundi.

          Markmið fundarins var að fara yfir helstu mál sem snúa að kjörum og réttindum félagsfólks Visku og kynna niðurstöður greiningar félagsins á kjörum hjá starfsfólki skólans. Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) tók einnig þátt í fundinum ásamt Gunnari Hrafnssyni, formanni FÍH.

          Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku setti fundinn og bauð félagsfólk velkomið. Júlíana Guðmundsdóttir lögmaður Visku fór því næst yfir réttindi félagsfólks og þau atriði sem helst snúa að þeim. Að lokum kynnti Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku niðurstöður greiningarinnar. Greiningin bendir til að verulega halli á kjör starfsfólks skólans í samanburði við aðra háskóla á Íslandi.

          „Launakjör starfsfólks LHÍ eru heilt yfir mun lakari en launakjör starfsfólks annarra háskóla á landinu samkvæmt mati Visku. Þetta er ósjálfbær staða til framtíðar því listir og menning eru ein af grunnstoðum samfélagsins. Viska mun á næstu misserum óska eftir þéttu samtali við hagaðila um hvernig bregðast á við stöðunni. Starfsfólk háskólans, hvort sem er í akademíunni eða stoðsviðum, á skilið að vera metið að verðleikum.“

          Brynhildur formaður Visku