Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Visku kort
          Fréttir

          Fé­lags­fund­ur vegna Stofn­un­ar at­vinnu­veg­anna

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          Þriðjudaginn 22. september héldu Viska og fleiri stéttarfélög félagsfund með starfsfólki Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita.

          Ásamt félagsfólki Visku tók þátt í fundinum félagsfólk FÍN, Dýralæknafélags Íslands, Sameykis og Stéttarfélags lögfræðinga sem starfa hjá áðurnefndum stofnunum og starfseiningum.

          Markmið fundarins var að fá skýra mynd af þeim álitaefnum sem helst brenna á starfsfólki vegna fyrirhugaðra breytinga. Jafnframt var markmiðið að tryggja að sjónarmið starfsfólks verði sett fram með sameiginlegum og afdráttarlausum hætti gagnvart atvinnuvegaráðuneytinu.

          Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi áskorun til atvinnuvegaráðherra:

          Félagsfundur starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram, án frekari tafa og eigi síðar en 1. október 2026, opinbera og skuldbindandi tímalínu um stofnun Stofnunar atvinnuveganna. Jafnframt verði starfsfólki veitt skrifleg og ótvíræð svör um framtíðarstörf, starfsstöðvar, kjör, forgangsrétt og varðveislu áunninna réttinda áður en þess er krafist að það taki ákvörðun um framtíð sína í starfi.

          Fundurinn telur með öllu óásættanlegt að starfsfólk sé látið búa áfram við óvissu vegna tafa og skorts á upplýsingum.

           Áskorun þessi var samþykkt á félagsfundi starfsfólks 22. september 2026, sem eftirfarandi stéttarfélög starfsfólks fyrrnefndra stofnana boðuðu:

          Dýralæknafélag Íslands, FÍN, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga, Viska

          Um 120 félagsmenn mættu á fundinn, bæði í sal Visku í Borgartúni og í fjarfundi, og sköpuðust góðar umræður um þau málefni sem tekin voru fyrir.

          Viska hvetur félagsfólk sitt sem starfar hjá Matvælastofnun, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlitum að vera í góðu sambandi við skrifstofu félagsins.