Beint í efni
Ávinningur aðildar

Ávinningur aðildar

    Kjör og réttindi

    Kjör og réttindi

      Hagsmunagæsla

      Hagsmunagæsla

        Launagreiðendur

        Launagreiðendur

          Þekking sem vinnur með þér

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          Snjallleit Visku

          Með snjallleit Visku getur þú nálgast allar upplýsingar á vefsíðu félagsins með einföldum og fljótlegum hætti.

          ráðhús reykjavíkur tjörn gróður
          Fréttir

          Fé­lags­fólki Visku hjá Reykja­vík sagt upp

          Höfundur

          Gauti Skúlason

          Gauti Skúlason

          samskipti og markaðsmál

          „Sparnaðartækifæri borgarinnar felast ekki í uppsögnum á verðmætu starfsfólki,“ segir Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku.

          Reykjavíkurborg sagði í dag upp hátt í 90 starfsmönnum á velferðar-, skóla- og frístundasviði en félagsfólk Visku er þar á meðal. Félagsfólk sem hefur fengið uppsögn eða telur sig verða fyrir áhrifum af breytingunum er hvatt til að hafa samband við félagið sem fyrst.

          Jafnframt segir Brynhildur „Við hefðum viljað sjá Reykjavík grípa til annarra aðgerða en uppsagna sem koma niður á verðmætu starfsfólki og skerða þjónustu við borgarbúa. Sparnaðartækifærin í um 200 milljarða rekstri borgarinnar liggja annars staðar. Við munum standa með félagsfólki Visku og tryggja réttláta málsmeðferð.“

          Hvað Viska gerir næst

          Viska fer yfir hvert mál fyrir sig og kannar meðal annars hvort málsmeðferð og rökstuðningur Reykjavíkurborgar samræmist lögum, kjarasamningum og reglum borgarinnar.

          Félagsfólk sem uppsagnirnar snertir er hvatt til að varðveita öll gögn sem tengjast málinu, þar á meðal uppsagnarbréf, starfslýsingar, ráðningarsamninga og önnur samskipti við vinnuveitandann.

          Mikilvægt er að hafa í huga að í uppsagnarfresti halda starfsmenn almennt réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi, þar á meðal rétti til launa, orlofsávinnslu, lífeyrisiðgjöldum og öðrum umsömdum starfskjörum. Réttindi félagsfólks hjá Visku haldast jafnframt út uppsagnarfrestinn.

          Viska veitir félagsfólki meðal annars ráðgjöf um:

          • lengd uppsagnarfrests og starfskjör á tímabilinu,
          • rétt til rökstuðnings og aðgangs að gögnum,
          • lögmæti og málsmeðferð uppsagnar,
          • áunnin réttindi og uppgjör við starfslok,
          • og önnur atriði sem tengjast uppsögninni og næstu skrefum.

          Félagsfólk Visku sem hefur fengið uppsögn eða telur sig verða fyrir áhrifum af breytingunum er hvatt til að hafa samband við félagið sem fyrst.