
Umsagnir
Fasteignaverð hækkað 15-falt á við meðaltal annarra Norðurlanda
Raunverðshækkanir á húsnæði síðustu 10 árin á Íslandi eru 15-faldar á við hækkanir á öðrum Norðurlöndum, fimmfaldar á við hækkanir á heimsvísu og nær fjórfaldar á við hækkanirnar á evrusvæðinu. Þetta er meðal þess kemur fram í umsögn Visku um drög að frumvarpi til laga um varanlega heimild til ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á lán.
Viska leggur til fjórar tillögur til að betrumbæta frumvarpið.
- Uppfæra ætti hámarkið í 675 þúsund krónur á árinu 2026: Til að endurspegla kaupmáttarrýrnun heimila gagnvart húsnæðiskaupum frá því að lögin tóku fyrst gildi á árinu 2014. Viska bendir einnig á að meðalheimilið hefur aukið séreignargreiðslur sínar um 120% á sama tíma, meðan hámarksfjárhæðin stóð í stað.
- Framreikningur frá og með 2027 innifeli einnig 2% hækkun fasteignaverðs: Framreikna ætti hámarkið um vísitölu neysluverðs til viðbótar við 2% álag frá og með 2027 til að endurspegla sögulegar raunverðshækkanir á húsnæði.
- Tekjulægri hópar geti líka nýtt sér hámarksheimildina: Tryggja þarf að tekjulægri hópar geti nýtt sér hámarksheimildina eins og aðrir með því að heimila umframgreiðslur af höfuðstól séreignarsjóðs í lok hvers almanaksárs. Núverandi fyrirkomulag skapar ójafnræði milli tekjuhópa m.a. ungs fólks og eldri kynslóða og hlutastarfandi og fólks í fullu starfi.
- Heildarendurskoða þarf húsnæðisstuðning við eigendur: Stofna ætti starfshóp óháðra sérfræðinga til að draga upp samanburð á húsnæðisstuðningi á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Heildarendurskoða ætti stuðning við eigendur í framhaldi.
